Mynd
Strákar að spjalla saman

Örugg leið til vaxtar með Business Central

Náðu meiri árangri með Business Central, viðskiptakerfi sem vex með þínum þörfum. Við hjálpum þér að nýta kraftinn í skýinu til að taka snjallari ákvarðanir og tryggjum að flutningurinn styðji við þín viðskiptamarkmið án þess að trufla daglegan rekstur.

Vertu í hópi ánægðra viðskiptavina

  • SportsDirect
  • Elko
  • Tandur logo
  • Íslandshótel
  • Joe & the juice
  • Öryggismiðstöð logo

Eitt kerfi fyrir allan reksturinn

Business Central er heildstæð viðskiptalausn sem samþættir alla mikilvæga þætti rekstrarins, allt frá fjármálum og sölu til innkaupa, birgðastýringar og verkefnastjórnunar.

Með því að færa reksturinn í Business Central í skýinu losnar þú við flókið viðhald og dýrar uppfærslur. Starfsfólk hefur aðgang að upplýsingum hvar sem er og reksturinn verður sveigjanlegri, skilvirkari og betur í stakk búinn fyrir vöxt.

Ásta og Fabian

Það léttir okkur óneitanlega lífið að geta leitað til sérfræðinga Origo og nýtt það breiða þekkingarsvið og lausnaframboð sem þar er boðið upp á.

Ásgeir Rúnar Viðarsson

Deildarstjóri UT hjá Öryggismiðstöð Íslands

Reynsla sem tryggir örugga vegferð

Þegar kemur að því að innleiða eða uppfæra í nýjustu útgáfu Business Central trúum við því að farsælasta leiðin sé sú sem tryggir samfelldan rekstur.
Í stað þess að gera allar breytingar í einu skiptum við vegferðinni í skýr og hnitmiðuð skref.
Þannig lágmörkum við rekstraráhættu og tryggjum að starfsfólkið upplifi öryggi í nýju umhverfi.

Lágmarks rekstraráhætta

Við leggjum áherslu á að flutningur úr eldri kerfum yfir í Business Central valdi litlum sem engum truflunum á daglegri starfsemi.

Nína
Gagnadrifin greining

Við byrjum á að greina notkun á núverandi kerfum. Þannig tryggjum við að nýja lausnin verði einfaldari í rekstri og laus við óþarfa flækjur.

Þorsteinn
Skref fyrir skref

Við stígum breytinguna í skrefum og endursköpum núverandi vinnuumhverfi í nýju kerfi áður en við förum í að endurhanna ferla eða bæta við nýrri virkni. Þannig tryggjum við stöðugleika í rekstrinum og lágmörkum rekstraráhættu verulega.

Fabian
Stuðningur

Við stöndum þétt við bakið á þér og þínu fólki til að tryggja að allt gangi smurt fyrir sig og starfsfólk sé öruggt í nýju umhverfi.

Kristín
Áframhaldandi þróun

Þegar reksturinn er orðinn stöðugur í Business Central höldum við áfram að bæta við virkni sem styður við framtíðarsýn og vöxt fyrirtækisins.

Mummi
Mynd
Blogg

Náðu forskoti með Business Central

Business Central er viðskiptakerfi sem hjálpar fyrirtækjum að tengja saman rekstur, fjármál, þjónustu og birgðastýringu.

Algengar spurningar

Business Central (BC) er heildstæð viðskiptalausn í skýinu sem heldur utan um alla þætti rekstrarins; fjármál, sölu, innkaup, birgðir og verkefnastjórnun. Kerfið er arftaki Microsoft Dynamics NAV (Navision) og býður upp á nútímalegt viðmót og öfluga samþættingu við aðrar Microsoft lausnir.

Við vinnum eftir nálgun sem lágmarkar rekstraráhættu. Við einblínum á að halda rekstrinum gangandi á meðan breytingar eiga sér stað og notum raungögn í okkar greiningu svo það séu engin óvænt vandamál eftir ræsingu.

Business Central notar rauntímagögn til að spá fyrir um sölu og lætur vita þegar hætta er á birgðaþurrð. Kerfið getur útbúið sjálfvirkar innkaupapantanir byggðar á spálíkönum og einfaldar öll samskipti við birgja. Þannig tryggir þú að réttar vörur séu til á réttum tíma.

Við greinum tækniskuld og sérlausnir í upphafi og metum hvað þarf að flytja. Í stað þess að flytja gamlar og þungar sérlausnir yfir leitum við leiða til að nota staðlaða virkni BC eða getum smíðað léttari viðbætur sem trufla ekki framtíðaruppfærslur kerfisins.

Í skýinu sér Microsoft um allan rekstur, hýsingu og öryggisafritun. Kerfið uppfærist sjálfkrafa tvisvar á ári sem þýðir að þú ert alltaf í nýjustu útgáfunni og losnar við flóknar uppfærslur á nokkurra ára fresti.

Með því að keyra Business Central í skýi Microsoft eru gögnin þín dulkóðuð sjálfkrafa og varin með öryggislausnum á heimsmælikvarða gegn óviðkomandi aðgangi. Þú færð auk þess fullan fyrirsjáanleika á kostnaði þar sem enginn óvæntur kostnaður fellur til vegna hýsingar.

Já, Business Central samþættist við Power BI og aðrar Microsoft lausnir sem dæmi. Við getum hjálpað þér að setja upp mælaborð sem sýnir rauntímagögn úr rekstrinum á myndrænan hátt svo þú getir tekið betri og hraðari ákvarðanir.

Nútímvavæddu reksturinn með Business Central

Ekki láta eldri kerfi standa í vegi fyrir framförum. Við hjálpum þér að flytja reksturinn yfir í Business Central á öruggan hátt.

Origo heldur utan um samskiptaupplýsingar þínar svo hægt sé að afgreiða beiðni þína. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hjá Origo hér.

Efni og greinar