Mynd
origo

Þetta er Origo

Við hjálpum fyrirtækjum og stofnunum að skara fram úr í kvikum stafrænum heimi – með lausnum sem eru sniðnar að þeirra þörfum.

Náðu forskoti með okkur

Hjá Origo starfar öflugur hópur fólks með sérþekkingu sem gerir okkur kleift að veita viðskiptavinum okkar ráðgjöf og þjónustu til að ná árangri í sinni starfsemi. Við snertum með starfsemi okkar marga mismunandi þætti samfélagsins, fyrirtæki og stofnanir. Við bjóðum upp á öflugt lausnaframboð, allt frá stafrænni umbreytingu, kerfisrekstri og þjónustu í upplýsingaöryggi og viðskiptalausnum.

Gæðamál
Konur að störfum

Við tengjum saman þekkingu, tækni og fólk til að hjálpa fyrirtækjum að ná forskoti.

Traust byggist á góðu samstarfi, sérþekkingu og skilningi á þörfum viðskiptavina. Með yfirburða þekkingu á íslenskum markaði og öflugum teymum sérfræðinga vinnum við stöðugt að því að hjálpa viðskiptavinum að þróast, einfalda rekstur og horfa fram á við.

Framtíðin bíður ekki. Ekki við heldur.

Vinnum traust

Origo byggir á hugviti, reynslu og sérþekkingu starfsfólks. Þessi djúpa tækniþekking, ásamt því að hlusta á og skapa virði fyrir viðskiptavininn gerir það að verkum að við ávinnum okkur traust og gerum okkur gildandi í samfélaginu.

Breytum leiknum

Við trúum að betri tækni breyti leiknum og skapi um leið virði fyrir viðskiptavininn. Við viljum að tæknin geri viðskiptavinum okkar kleift að skara fram úr og að hún skipti sköpum.

Þróum áfram

Góðar lausnir þarf stöðugt að þróa áfram til að þær séu fremstar á markaðnum og uppfylli þarfir viðskiptavina. Tæknin er hröð og til þess að hún verði sífellt betri þarf stöðugt að vera að þróa hana áfram – hratt en örugglega.

Djúpar rætur í íslensku samfélagi

Origo varð til þegar Nýherji, TM Software og Applicon sameinuðust árið 2018. Félagið rekur sögu sína til ársins 1949 og var lengi vel IBM á Íslandi. IBM á Íslandi, og síðar Nýherji, var þekkt fyrir að vera í fararbroddi hérlendis við markaðssetningu á IBM-tölvum og þjónustu við fyrirtæki og heimili. TM Software, sem síðar varð Skyggnir, var á meðal 500 stærstu hugbúnaðarfyrirtækja í Evrópu upp úr aldamótum. Applicon hafði haslað sér völl á Norðurlöndum sem ráðgjafarfyrirtæki á sviði hugbúnaðar.

2026

Corus ehf verður til

Kjarni, mannauðs- og launalausn frá Origo, varð hluti af Corus, nýju mannauðstæknifyrirtæki sem varð til við sameiningu Origo og Moodup ehf.

Corus

2026

Orku og innviðasvið Origo og Rafholt sameinast

Orku og innviðasvið Origo og Rafholt sameinast undir kennitölu Rafholts. Með sameinuðu félagi verður til öflugur þjónustuaðili innviða og orkulausna með um 170 starfsmenn.

Rafholt

2025

Origo kaupir Kappa ehf.

Origo kaupir Kappa ehf, hugbúnaðarráðgjafafyrirtæki sem sérhæfir sig í innleiðingu Microsoft Business Central, sem er nýjasta kynslóð viðskiptakerfa frá Microsoft.  

Kappi

2025

Ofar verður til

Notendalausnir Origo verða að sjálfstæðu félagi undir nafninu Origo lausnir. Origo lausnir bjóða upp á tölvubúnað, hljóð- og myndlausnir, fundar- og ráðstefnulausnir, afgreiðslukerfi, prentlausnir, snjallbox og vöruhúsakerfi fyrir fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga.

Mynd

2023

Helix verður til

Heilbrigðislausnir Origo verða að sjálfstæðu félagi undir nafninu Helix. Helix þróar byltingarkenndar tæknilausnir sem styðja við heilbrigðis- og velferðarkerfi landsins.

Mynd

2022

Origo selur eignarhlut sinn í Tempo

Origo selur eftirstandandi eignarhlut sinn í Tempo til Diversis Tempo Holdings fyrir 27,8 milljarða króna.

Mynd

2021

Syndis

Syndis og öryggislausnir Origo sameinast undir merki Syndis

Mynd

2018

Origo verður til

Nýherji, TM Software og Applicon hafa sameinast undir nýju nafni og sækja nú fram sem eitt öflugt upplýsingatæknifyrirtæki, Origo. Dótturfélögin eru Tempo og Applicon í Svíþjóð.

Mynd

2014

Tempo

Rekstur Tempo skilinn frá rekstri TM Software ehf. og stofnað um það sér fyrirtæki.

Mynd

2008

Þróun Tempo

Þróunarteymi stofnað í kringum Tempo vöruna en hugmyndin hafði fæðst ári áður.

Mynd

2007

Nýherji kaupir TM Software

Nýherji breytir innra skipulagi og viðskiptamódeli Nýherja-samstæðunnar árið 2008. Skyggnir ehf. og Vigor ehf. eru skilin frá TM Software, sem var áður móðurfélag þessara eininga

Mynd

2005

TölvuMyndir

Nafni fyrirtækisins er formlega breytt úr TölvuMyndir í TM Software.

Mynd

2005

DanSupport

Nýherji keypti allt hlutafé í danska félaginu DanSupport A/S, en það var svo selt til Jansson Kommunikation A/S í janúar 2014.

Mynd

2005

Applicon

Undirritaður samningur um kaup á danska SAP-ráðgjafarfyrirtækinu Applicon A/S í Kaupmannahöfn. Í byrjun árs 2014 lokið við sölu á dótturfélögum Nýherja í Danmörku, Applicon A/S og Applicon Solutions A/S. Í dag er Applicon með starfsemi á Íslandi og í Svíþjóð. Applicon í Danmörku var síðar selt úr rekstri Nýherja.

Mynd

2004

SAP

Í tengslum við aukin erlend verkefni á sviði SAP-hugbúnaðar var dótturfélagið Nýherji A/S í Danmörku stofnað.

Mynd

2000

Vigor stofnað

Vigor stofnað sem dótturfélag Tölvumynda. Nýtt húsnæði félagsins í Borgartúni 37 tekið í notkun.

Mynd

2000

Klak stofnað

Nýherji stofnar frumkvöðlasetrið Klak.

Mynd

1995

Hlutabréf

Viðskipti með hlutabréf félagsins hófust á Opna tilboðsmarkaðinum 30. nóvember 1995 og á Verðbréfaþingi Íslands (nú OMX Nordic Exchange Iceland) 30. október 1997.

Mynd

1992

Nýherji hf stofnað

Nýherji verður að veruleika 1992. Gunnar M. Hansson var forstjóri IBM á Íslandi frá 1982 og einnig forstjóri Nýherja hf. frá stofnun þess 2. apríl 1992 og þar til í maí 1996. Frosti Sigurjónsson tók við starfi forstjóra af Gunnari næstu fimm árin. 2001 tók Þórður Sverrisson við starfi forstjóra Nýherja og starfaði fram til ársins 2013. Finnur Oddsson, aðstoðarforstjóri tók við starfi Þórðar það ár.

Mynd

1990

Skrifstofuvélar-Sund hf.

Árið 1990 komst Skrifstofuvélar-Gísli J. Johnsen hf. í eigu Óla Kr. Sigurðssonar og kallaðist Skrifstofuvélar-Sund hf. þar til það var sameinað IBM á Íslandi. við stofnun Nýherja hf.

Mynd

1987

Skrifstofuvélar-Gísli J. Johnsen hf.

Gísli J. Johnsen-Skrifstofubúnaður sf. Kaupir rekstur og lager Skrifstofuvéla hf. og var starfsemin sameinuð undir nafninu Skrifstofuvélar-Gísli J. Johnsen hf.

Mynd

1986

TölvuMyndir stofnað

TölvuMyndir stofnað á Íslandi af Friðriki Sigurðssyni.

Mynd

1967

IBM á Íslandi

IBM á Íslandi verður að veruleika. Skrifstofuvélar lögðu til helming af sínu starfsfólki og var Ottó A. Michelsen forstjóri fyrirtækisins allt til ársins 1982, þegar Gunnar M. Hansson tók við.

Mynd

1949

Skrifstofuvélar hf. einkaumboðsaðili fyrir IBM

Árið 1949 urðu Skrifstofuvélar hf. einkaumboðsaðili fyrir IBM hér á landi. IBM á Íslandi hf. var síðan stofnað sem sérstakt fyrirtæki í eigu IBM árið 1967. 

Mynd

1946

Stofnun Skrifstofuvéla hf.

Saga IBM á Íslandi hf. hófst með stofnun Skrifstofuvéla hf. árið 1946 en stofnandinn var Ottó A. Michelsen.

Mynd

1899

Upphafið

Forsaga Skrifstofuvéla-Sunds hf. nær allt til ársins 1899.

Mynd
Stjórnendur
Stjórn og stjórnarhættir
Stefnur, reglur og verklag
Skilmálar og öryggismál
Mynd
Erum við að leita að þér?

Origo leggur ríka áherslu á að ráða hæfasta starfsfólk sem völ er á. Við ráðum inn fjölbreyttan hóp fólks með fjölbreytta hæfni og tækniþekkingu.