Mynd
Mynd

Fyrsta flokks  starfsumhverfi sem ýtir undir vellíðan og nýsköpun starfsfólks

Hjá Origo starfar öflugur hópur fólks sem trúir því að betri tækni bætir lífið. Allt sem við gerum er unnið af fólki, í samvinnu við fólk og fyrir annað fólk. Það er markmið okkar að auka fjölbreytileika meðal starfsfólks, fjölga konum í upplýsingatækni og fjölga ráðningum ungra og upprennandi einstaklinga.

Starfstækifæri

Almenn umsókn 2026 / General Application 2026
6. janúar 2025

Mannauður og menningin

Jafnrétti og fjölbreytileiki
  • Virk jafnlaunastefna með markvissum aðgerðum
  • Jafnlaunavottun
  • Stuðlum að jöfnum tækifærum, óháð kyni, aldri, kynþætti og kynhneigð
  • Markmið að 50% ráðninga séu konur
  • Einelti og ofbeldi í hvaða mynd sem er aldrei liðið
Vellíðan
  • Velferðarpakki í samstarfi við Heilsuvernd með aðgengi að fjölbreyttri heilsutengdri þjónustu
  • Mánaðarlegar mælingar á líðan starfsfólks og eftirfylgni
  • Fjarvinna og sveigjanleiki í starfi
  • Fjölbreyttir heilsutengdir fyrirlestrar
  • Holl næring í boði allan daginn
  • Heilbrigt og öruggt starfsumhverfi
Nýsköpun
  • Nýsköpun alla daga og hluti af okkar DNA
  • Árlegir ofurhetjudagar
  • Stöðugar umbætur í starfs- og tækniumhverfi okkar
  • Þróum áfram og breytum leiknum
  • Styrkir við frumkvöðlasamfélagið, t.d. Gulleggið

Við byggjum á liðsheild og leggjum áherslu á að ýta undir styrkleika hvers annars

Í mannauðsmálum leggjum við áherslu á fyrsta flokks starfsumhverfi sem ýtir undir vellíðan og nýsköpun starfsfólks. Við leggjum áherslu á að bjóða starfsfólki upp á frábært tækniumhverfi, þar sem fólk fær tækifæri til að vinna með nýja  tækni í bland við rótgróna. Við erum sífellt að þróa vinnustaðinn, starfsumhverfið, tækið og tólin sem starfsfólk nýtir í starfi og ýtum undir stöðugar umbætur. Við bjóðum upp á frábær  tækifæri til þróunar og vaxtar í starfi.

Mynd
Mynd

Menntasjóðurinn Fremri

Menntasjóðurinn Fremri var stofnaður til að virkja hugvit og styrkja mannauð Origo til framtíðar á sviði nýsköpunar og verðmætasköpunar. Er sjóðnum ætlað að auka hraða í uppbyggingu á þekkingu og reynslu í þróun, sölu- og markaðssetningu á hugbúnaðarvörum og tæknilausnum.

Markmið styrkveitinga úr menntasjóðnum Fremri er að gera starfsfólki og framtíðar starfsfólki kleift að sækja sér fjölbreytta og alþjóðlega menntun í hæsta gæðaflokki á sviði nýsköpunar, þróunar hugbúnaðar- og tæknilausna, framtíðartækni og viðskiptaþróunar.

Jafnlaunavottun

Origo er jafnlaunavottað fyrirtæki frá því árið 2018 skv. jafnlaunastaðlinum ÍST 85:2012 og vinnum við markvisst að áframhaldandi umbótum í jafnlaunamálum. Jafnlaunakerfið styður við markmið okkar í jafnréttismálum og tryggir að allar ákvarðanir varðandi laun séu teknar á sama hátt fyrir konur, karla og kvár og að þau viðmið sem lögð eru til grundvallar launaákvörðunum feli ekki í sér kynjamismunun.

Jafnlaunakerfið nær yfir öll störf og allar starfsstöðvar Origo á Íslandi.

BSI á Íslandi hefur séð um faglega úttekt á jafnlaunavottun Origo og árlega viðhaldsúttekt.

Mynd
Mynd

Ofurhetjudagar

Á hverju ári eru haldnir svokallaðir ofurhetjudagar hjá Origo. Um er að ræða keppni milli starfsfólks í einn sólarhring sem hefur að markmiði að efla nýsköpun og þróa nýjar tæknilausnir.

Starfsfólk fyrirtækisins velur sér verkefni og vinna saman í hópum að því sem þá langaði helst að skapa og kynna síðan niðurstöðuna fyrir öðrum starfsmönnum. Sigur í keppninni veiti vinningsliðinu montrétt og ofurhetjuskikkjuna sem er hinn eiginlegi farandbikar keppninnar ásamt því að Origo styður við áframhaldandi þróun hugmyndarinnar.