
Nýsköpun hjá Origo
Origo á djúpar rætur í nýsköpun og við viljum fjárfesta í nýsköpun á öllum sviðum félagsins hvort sem það er sprotaþróun eða úrbætur á þroskaðri lausnum. Sem nýsköpunarfyrirtæki erum við á stöðugri hreyfingu til að þróa lausnir sem mæta þörfum viðskiptavina okkar og hjálpa þeim að ná árangri.
Samfélagið
Við trúum því að áskoranir samfélagsins verði leystar með nýsköpun. Þess vegna er okkur mikilvægt að styðja við nýsköpunarumhverfið, einnig utan Origo. Origo er einn aðaleiganda Klak Icelandic Startups sem hefur það hlutverk að stækka og styðja við samfélag frumkvöðla á Íslandi með það að markmiði að fjölga sprotafyrirtækjum. Stuðningur okkar felst í fjárfestingu í völdum nýsköpunarhröðlum auk þess að starfsfólk okkar deilir sérþekkingu sinni til að hjálpa verkefnum af stað í nýsköpunarferlinu.
Fjölbreytileiki
Lykilatriði í mannauðsstefnu Origo er að efla fjölbreytileika meðal starfsfólks. Með fjölbreyttum sjónarhornum, bakgrunni, aldri og kynjum sköpum við umhverfi sem eflir nýsköpun.
Stöðug þróun
Origo byggir á hugviti, reynslu og sérþekkingu starfsfólks. Við sköpum lausnir fyrir fólk og allt sem við gerum er unnið af fólki. Við viljum því skapa umhverfi sem býður upp á stöðuga þróun og þroska og byggja þannig nýskapandi menningu. Okkar eigið tækniumhverfi á einnig að vera í þróun, líkt og starfsumhverfið, tæki og tólin.
Ofurhetjudagar
Ofurhetjudagar Origo eru ein af mörgum leiðum fyrirtækisins til að ýta undir nýsköpun og stuðla að sköpunargleði starfsfólks. Margar frambærilegar hugmyndir hafa fæðst á Ofurhetjudögum sem hafa síðar þróast yfir í raunverulegar lausnir