Mynd
Origo valið Fyrirmyndar-fyrirtæki 2026
18.05.2026

Origo valið Fyrirmyndar-fyrirtæki 2026

Við erum afar stolt og þakklát fyrir að hafa hlotið nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki ársins 2026 í flokki stórra fyrirtækja í könnun VR.

Niðurstöður úr stærstu vinnumarkaðskönnun landsins, könnun VR um Fyrirtæki ársins 2026, liggja nú fyrir. Við hjá Origo erum afar stolt og þakklát fyrir að hafa hlotið nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki ársins í flokki stórra fyrirtækja.

Niðurstöðurnar voru kynntar við hátíðlega athöfn í Silfurbergi í Hörpu þar sem fyrirtæki úr ólíkum stærðarflokkum voru heiðruð fyrir framúrskarandi árangur í mannauðsmálum.

Byggt á mati starfsfólks

Aðeins þau 15 fyrirtæki sem skora hæst í hverjum stærðarflokki hljóta viðurkenningu og teljast þar með meðal þeirra vinnustaða sem skara fram úr á íslenskum vinnumarkaði.

Sameiginlegur árangur

Hjá Origo höfum við lagt ríka áherslu á að byggja upp metnaðarfullt og öflugt starfsumhverfi þar sem traust, liðsheild og vellíðan starfsfólks eru í fyrirrúmi.