
Náðu betri stjórn á gæðamálunum með CCQ
CCQ einfaldar alla hlítingu staðla og reglugerða og tryggir samræmt verklag. Með áratuga reynslu að baki auðveldum við fyrirtækjum að miðla þekkingu og halda utan um gæðakröfur á einum skipulögðum stað.
Allt á einum stað
Hjartað í CCQ er gæðahandbókin. Þar er haldið utan um alla verkferla, reglur og staðla. Með persónulegu yfirliti sér hver starfsmaður nákvæmlega það sem hann þarf að vita.
Einfaldari vottanir og úttektir
CCQ flýtir öllu ferlinu í kringum vottanir (t.d. ISO). Úttektaraðilar geta fengið aðgang inn í kerfið sem sparar dýrmætan tíma og tryggir að fyrirtækið sé alltaf tilbúið í úttekt.
Öruggur og rekjanlegur rekstur
Kerfisbundin áhættustjórnun, sjálfvirkar áminningar og rekjanleiki allra aðgerða tryggir að ekkert gleymist í mikilvægum ferlum.
Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina
Sveigjanleg lausn sem vex með þér
CCQ er hannað úr einingum svo þú getur byrjað á því sem brennur mest á og bætt við eftir þörfum.
Gæðahandbók
Með allar upplýsingar á einum stað getur þú stýrt gæðamálum, tryggt samræmi í verkferlum og sparað dýrmætan tíma við undirbúning úttekta.
Ábendingar
Með stafrænu verklagi er auðvelt að safna ábendingum frá starfsfólki og viðskiptavinum, greina orsakir vandamála og tryggja markvissar úrbætur.
Áhættustjórnun
Greindu og stýrðu áhættuþáttum í rekstrinum á skipulagðan hátt, hvort sem um er að ræða öryggismál, fjárhagslega áhættu eða persónuvernd.
Úttektir
Einfaldaðu undirbúning, framkvæmd og eftirfylgni úttekta í samræmi við ströngustu staðla. Stafrænt ferli dregur úr pappírsvinnu, tryggir skýra ábyrgðarskiptingu og gerir þér kleift að rekja framvindu úrbóta frá upphafi til enda.
Eignastjórnun
Náðu heildarsýn yfir allar eignir fyrirtækisins á einum stað, frá tækjum og búnaði til hugbúnaðarleyfa. Kerfið tryggir nákvæma skráningu á ástandi, staðsetningu og viðhaldssögu verðmæta sem bætir nýtingu og hámarkar arðsemi fjárfestinga.
Gæðastjóri til leigu
Með gæðastjóra til leigu færð þú reyndan fagaðila sem stýrir uppbyggingu gæðakerfisins, innleiðir mælanlegar umbætur og þjálfar starfsfólk. Hagkvæm lausn fyrir þau sem vilja ná hámarksárangri án þess að binda sig í fastráðningum.

Gæðastjórnunarskólin
Í Gæðaskólanum öðlast þú hagnýta þekkingu og verkfæri sem nýtast strax í starfi. Námskeiðin hjálpa einstaklingum og fyrirtækjum að efla gæðastjórnun, samræma verklag og styðja við stöðugar umbætur.

Ég veit ekki hvernig við myndum sinna gæðastarfi án þess að hafa CCQ
Halla Marinósdóttir
Öryggis- umhverfis- og gæðastjóri hjá Orkusölunni
Algengar spurningar
Vilt þú koma gæðamálunum í öruggt skjól?
Leyfðu okkur að sýna þér hvernig CCQ veitir þér þá yfirsýn sem þarf til að uppfylla ströngustu kröfur og staðla á auðveldan hátt.








