
Origo kaupir Maven ehf. og eykur umsvif sín í gagna- og gervigreindarlausnum
Origo hefur gengið frá kaupum á öllu hlutafé Maven ehf., sem sérhæfir sig í viðskiptagreind, gervigreindarlausnum og þróun snjallra mælaborða sem styðja við gagnadrifna ákvarðanatöku viðskiptavina sinna. Maven hefur vaxið ört frá stofnun árið 2021 og er í dag leiðandi aðili á íslenskum markaði í uppbyggingu gagnainnviða og hagnýtingu gagna fyrir mörg af stærri fyrirtækjum og stofnunum landsins.
Kaupin eru liður í stefnu Origo um að efla enn frekar stöðu sína sem leiðandi samstarfsaðili á sviði gagna og gervigreindar, og styrkja getu félagsins til að aðstoða viðskiptavini við að umbreyta gögnum í raunverulegt virði með nýtingu nýjustu tækni og lausna.
Styrkir stöðu Origo í gagnadrifnum lausnum
Með kaupunum bætir Origo við sig öflugu teymi sérfræðinga Maven með djúpa þekkingu á gagnavinnslu, gagnainnviðum og þróun greiningarlausna. Sameining félaganna skapar sterkari heild í þjónustu við viðskiptavini sem vilja nýta gögn og gervigreind til að bæta rekstur og auka samkeppnishæfni.
„Teymisvinna hefur verið lykilatriði í starfi Maven, enda er þekkingarfyrirtæki eins og okkar fyrst og fremst fólkið sjálft. Sú hugsun passar vel við það sem við sjáum hjá Origo og afar spennandi að verða hluti af stærri heild. Með sameiginlegum styrk getum við byggt upp enn öflugri þjónustu, framtíðarvæna gagnainnviði, tengt betur saman gögn og kerfi og hjálpað viðskiptavinum að koma gögnum í verk. Framundan eru spennandi tímar og við hlökkum til að halda áfram að vaxa og þróa lausnir sem skipta máli,“ segir Helgi Hrafn Halldórsson, framkvæmdarstjóri Maven.