
SpendSenze Innkaupagreining
Við bjóðum viðskiptavinum Unimaze 50% afslátt af SpendSenze innkaupagreiningu fyrstu þrjá mánuðina.
SpendSenze skannar alla reikningana þína og greinir sjálfvirkt sóun í innkaupum fyrirtækja. Við sýnum þér þegar einingarverð hækkar, þú ert að kaupa inn meira af ákveðnum vörum og flöggum því sérstaklega svo þú getir gripið til aðgerða.
Þannig er einfaldara að sjá sparnaðartækifæri, semja um betri kjör við birgja og taka heilt yfir betri ákvarðanir fyrir reksturinn þinn.
Tilboð fyrir viðskiptavini Unimaze
Vilt þú fá 50% afslátt af SpendSenze fyrstu þrjá mánuðina? Bókaðu okkur á fund og við segjum þér meira um hvernig SpendSenze getur hjálpað þínu fyrirtæki.
Láttu reikningana vinna fyrir þig
SpendSenze kemur með tilbúnum skýrslum í PowerBI. SpendSenze er gríðarlega hentug lausn fyrir fyrirtæki sem vilja grípa til aðgerða hratt og örugglega.
- Komdu auga á veikleika og sóun. SpendSenze greinir veikleika og sóun í reikningum þínum og gerir þér kleift að kafa ítarlega í reikninga fyrirtækisins.
- Tilbúin gögn og skýrslur. Skoðaðu töflur og skýrslur í rauntíma, greindu mynstur og þróun með gögnunum þínum.
- Greindu útgjöld hratt. Fáðu skýrt yfirlit yfir útgjöld rekstrarins og greindu dulinn kostnað sem áður væri erfitt að finna.
Hvernig Brauð & Co. lækkaði einingaverð á lykilvörum um 11%
Brauð & Co. hefur notað SpendSenze í nokkra mánuði, en lausnin hefur á þeim tíma aðstoðað þau við að ná fram hagræðingu í innkaupum svo um munar. Þar spilar verðvöktun og ítarleg birgjagreining stórt hlutverk.


