
Byggðu sterkari viðskiptasambönd með HubSpot CRM
Fáðu heildarsýn yfir viðskiptavini, sölutækifæri og samskipti á einum stað. HubSpot hjálpar þér að fylgja eftir tækifærum markvisst, bæta upplifun viðskiptavina og loka samningum hraðar. Með skýrri yfirsýn yfir sölupípuna og ferðalag viðskiptavinarins tekur þú betri ákvarðanir og skapar meiri vöxt.
360° sýn og sterkari sambönd
Heildarsýn yfir viðskiptavini, samskipti og tækifæri á einum stað.
Aukin sala og sýnileiki
Skýr yfirsýn yfir sölupípuna hjálpar þér að loka fleiri samningum hraðar.
Sjálfvirkni sem sparar tíma
Sjálfvirknivæddu ferla og losaðu um tíma fyrir það sem skiptir mestu máli.
Byggðu sterkari viðskiptasambönd
Fáðu heildarsýn yfir viðskiptavini, samskipti og tækifæri á einum stað. HubSpot tengir saman markaðssetningu, sölu og þjónustu þannig að teymi geti unnið betur saman, brugðist hraðar við og skapað betri upplifun fyrir viðskiptavini.
Með skýrari yfirsýn og sjálfvirknivæðingu verður auðveldara að auka sölu, bæta þjónustu og byggja upp langvarandi viðskiptasambönd.

Veldu rétta CRM kerfið fyrir þinn rekstur
Það getur verið flókið að velja á milli ólíkra CRM lausna á markaðnum. Við höfum tekið saman hagnýtan leiðarvísi með helstu ráðleggingum um hvað ber að hafa í huga svo þú getir tekið upplýsta ákvörðun sem styður við vöxt þíns fyrirtækis.
Haltu utan um ferðalag viðskiptavinarins
Óþekktur aðili
HubSpot hjálpar þér að ná til fólks í gegnum leitarvélabestun, auglýsingar og samfélagsmiðla svo fyrirtækið þitt sé það fyrsta sem þau uppgötva.

Mögulegur viðskiptavinur
Þegar mögulegur viðskiptavinur rannsakar lausnina nýtir þú HubSpot til að fanga áhugann með greinum, markpóstum og snjöllu vefviðmóti sem breytir heimsóknum í tækifæri.

Viðskiptavinur
Gerðu kaupferlið einfalt með því að nýta netspjall, tölvupóstsamskipti og rauntíma yfirsýn yfir sölupípuna til að loka samningum á réttum tíma.

Talsmaður
Eftir kaup sér HubSpot um að viðhalda hollustu með ánægjukönnunum og markpóstum, sem breytir viðskiptavinum í trygga talsmenn þíns fyrirtækis.

Láttu kerfin vinna saman
Microsoft 365
Samþætting HubSpot og Microsoft 365 tryggir að gögn flæði sjálfkrafa á milli kerfa. Þú þarft ekki lengur að skipta á milli glugga til að skrá samskipti eða uppfærða tengiliði.
Power BI
Með því að tengja HubSpot við Power BI færðu tæknilega yfirburði í greiningu á sölunni þinni. Með Power BI getur þú borið gögnin úr HubSpot saman við aðra hluta rekstrarins.
Microsoft Business Central
Samþætting HubSpot og Business Central lágmarkar handavinnu og eykur nákvæmni gagna þvert á fyrirtækið. Þegar salan og bókhaldið vinna úr sama gagnagrunni færð þú mun betri yfirsýn yfir reksturinn og viðskiptavininn.


