
Einfaldaðu samskiptin með Microsoft Teams
Microsoft Teams sameinar fólk, samtöl og gögn á einum stað svo teymi geti unnið hratt og örugglega saman. Í stað þess að samskipti týnist í endalausum tölvupóstum getur þú spjallað, haldið fundi og unnið í skjölum með samstarfsfólki hvar og hvenær sem er.
Árangursríkir fundir
Fundir í Teams einfalda alla fundarstjórnun. Í stað þess að leita að upplýsingum á víð og dreif hefur þú aðgang að skjölum, minnisatriðum og upptökum um leið og fundi lýkur.
Öll samskipti á einum stað
Teams er öflugt spjallforrit sem fækkar tölvupóstum og heldur utan um samskipti. Þú getur spjallað við samstarfsfólk, deilt skjölum eða sett af stað fjarfund hvar og hvenær sem er.
Bætt þjónustustig
Tengdu hefðbundna símaþjónustu við Teams og hringdu beint úr tölvunni eða símanum. Hægt er að bæta við sérhæfðu þjónustuveri og skiptiborði ofan á lausnina til að bæta þjónustustigið enn frekar.
Prófaðu Teams símkerfið frítt í 30 daga
Viltu sjá hversu auðvelt það er að stýra samtölum fyrirtækisins í Teams? Þú getur prófað þjónustuvers- og skiptiborðslausnina án endurgjalds í 30 daga.
Engin áskriftargjöld eru greidd á meðan prufutíma stendur, aðeins er greitt fyrir uppsetningu og Microsoft leyfi.

„Teams hefur einfaldað til muna hópa- og fjarvinnu með þeim árangri að á ótrúlega stuttum tíma er það orðið eitt af okkar öflugustu samskiptatækjum. Teams er nógu einfalt í notkun til þess að við gátum komið því í notkun án þess að þurfa að eyða miklum tíma í kennslu og upplýsingagjöf. Snilldin við Teams er líka hversu vel það er samþætt öðrum Microsoft lausnum og skýjaumhverfinu.“
Viðskiptavinur Origo
Fáðu enn meira út úr Teams
Microsoft 365
Samþættu Teams við Microsoft 365 til að hafa öll helstu verkfærin á einum stað. Með því að nýta tenginguna til fulls tryggir þú örugga skjalastýringu og hnökralaust flæði upplýsinga á milli kerfa.
Teams símkerfi
Með því að tengja símkerfið beint við Teams getur þú hringt og svarað hefðbundnum símtölum hvar sem er. Lausnin gerir þér kleift að bæta við þjónustuvers- og skiptiborðsstýringu ofan á viðmót Teams.
Viva Engage
Styrktu fyrirtækjamenninguna og opnaðu á samskipti þvert á deildir. Hægt er að vinna í Viva Engage beint inni í Teams viðmótinu.


