
Samfélagsstyrkir
Origo er aðalstyrktaraðili Slysavarnafélagsins Landsbjörg þar sem sérstök áhersla er lögð á stuðning í upplýsingatækni og netöryggismálum.
Finnum leiðina: Samstarf okkar skapar öryggi
Origo er aðalstyrktaraðili Landsbjargar. Yfirskrift samstarfsins er „Finnum leiðina: Samstarf okkar skapar öryggi“ og er sérstök áhersla lögð á stuðning við Landsbjörg í upplýsingatækni og netöryggismálum. Origo og Landsbjörg eiga það sameiginlegt að þurfa reglulega að leysa verkefni af ýmsum stærðum og gerðum og öryggi er alltaf í fyrirrúmi hjá báðum aðilum. Stundum eru krefjandi aðstæður og þá er þörf á nýsköpun og samvinnu.
Við trúum því að með því að einbeita okkur að einum málstað getum við haft þýðingarmeiri áhrif á samfélagið. Við tökum því ekki við öðrum styrktarbeiðnum.


Menntasjóðurinn Fremri
Markmið styrkveitinga úr menntasjóðnum Fremri er að stuðla að eflingu mannauðs hjá Origo með því að gera starfsfólki og framtíðar starfsfólki kleift að sækja sér fjölbreytta og alþjóðlega menntun í hæsta gæðaflokki. Styrkir úr sjóðnum geta verið:
- Styrkir til starfsmanna Origo og dótturfélaga til náms eða þekkingaröflunar á sviði nýsköpunar, þróunar hugbúnaðar- og tæknilausna, framtíðartækni og viðskiptaþróunar.
- Námsstyrkur til að efla unga leiðtoga hjá Origo og dótturfélögum með það að markmiði að styrkja ungt fólk til leiðtogastarfa og breytingastjórnunar.
KLAK - Icelandic Startups
Með því að styðja við nýsköpunarsamfélagið viljum við leggja okkar af mörkum til sjálfbærrar þróunar samfélagsins. Sögu KLAK Icelandic Startups má rekja til Origo, en Origo er í hópi aðaleigenda KLAK. Hlutverk KLAK er að stækka og styðja við samfélag frumkvöðla á Íslandi. Origo styður einnig við hraðla hjá KLAK bæði með fjárveitingum og vinnuframlagi starfsfólks Origo í hlutverki mentora. Origo er bakhjarl stærstu frumkvöðlakeppni landsins, Gulleggsins.
.png&w=1080&q=75)