
Öruggara Microsoft 365, án fyrirhafnar
Vöktun, öryggi og sérfræðiþekking í einni þjónustu, svo Microsoft 365, Teams og tæki starfsfólksins séu alltaf örugg og uppfærð.
Vandamálið: Kannastu við þetta?
- Öryggisstillingar í Microsoft 365 hafa ekki verið yfirfarnar lengi.
- Tæki starfsfólks eru ekki samræmd eða uppfærð.
- Símkerfið er gamalt og utan við Teams.
Það sem fylgir
Microsoft 365
Öruggar aðgangsstýringar, örugg miðlun skjala og reglulegar öryggisumbætur.
Microsoft Defender for Endpoint
Stöðugt öryggiseftirlit, hraðari viðbrögð við atvikum og vernd fyrir endatæki.
Microsoft Intune
Yfirsýn yfir öll tæki, sjálfvirkar uppfærslur og samræmdar öryggisstillingar.
Afritun á Microsoft 365
Allt umhverfið er afritað á 8 klst. fresti, í bakgrunni.
Hringdu og svaraðu í Teams
Teams símkerfi flytur símanúmer fyrirtækisins inn í Teams. Enginn vélbúnaður, ekkert viðhald og starfsfólk svarar í tölvunni eða símanum.
- Þjónustuver og skiptiborð. Sjálfvirkar svarraðir sem beina hverju símtali á réttan stað.
- Yfirsýn í rauntíma. Álag, afgreiðslutími og þjónustustig í Power BI.
- Tenging við viðskiptakerfi. Sjáðu hver hringir áður en þú svarar.
„Við fáum ekki mörg símtöl á dag og því var mikilvægt að lausnin væri ekki flókin í notkun heldur einföld og hlutverkamiðuð. […] stuðningur í gegnum allt ferlið ómetanlegur.“
Snorri Valsson
Viðskiptastjóri hjá Booking Factory


