Mynd
Ásta og Fabian

Frá gögnum í verðmæti

Microsoft Fabric sameinar gögn úr ólíkum kerfum á einn stað og skapar þannig traustan grunn sem gerir fyrirtækjum kleift að hagnýta gervigreind.
Allt á einum stað

Með Fabric sameinast gögn úr ólíkum kerfum í einu umhverfi. Það gefur teymum betri yfirsýn, einfaldari samvinnu og aðgang að upplýsingum í rauntíma.

Tilbúið fyrir gervigreind

Góð gögn eru forsenda þess að geta nýtt gervigreind í rekstri. Með Fabric verða gögnin tengd, aðgengileg og tilbúin til greiningar, sjálfvirkni og spágreininga.

Virkar með Microsoft umhverfinu þínu

Fabric tengist auðveldlega Microsoft 365, Power BI, Azure og öðrum lykilkerfum fyrirtækisins sem einfaldar innleiðingu og flýtir fyrir virðissköpun.

Gerðu gögnin að forskoti

Þegar gögn eru á mörgum stöðum fer tími í leit, samræmingu og handvirka vinnu. Með Microsoft Fabric færðu einn stað fyrir öll gögn fyrirtækisins þar sem upplýsingarnar eru aðgengilegar, áreiðanlegar og tilbúnar til greiningar.

Hvernig virkar Fabric?

Tengir saman gögn

Safnar gögnum úr öllum helstu kerfum fyrirtækisins, hvort sem um er að ræða ERP, CRM, Excel eða önnur gagnakerfi.

Sameinar upplýsingar

OneLake veitir einn sameiginlegan grunn fyrir öll gögn fyrirtækisins.

Umbreytir gögnum í innsýn

Gögn eru hreinsuð, sameinuð og greind þannig að þau verði tilbúin til notkunar.

Gerir upplýsingar aðgengilegar

Mælaborð og skýrslur í Power BI veita yfirsýn í rauntíma fyrir stjórnendur og starfsfólk.

Tengist lausnunum sem þú notar nú þegar

Microsoft Fabric vinnur með þeim kerfum sem fyrirtækið notar í dag, þar á meðal Business Central, Power BI, Azure, Copilot og öðrum viðskiptakerfum. Þannig nýtast núverandi fjárfestingar betur og gögn flæða á milli kerfa án tvíverknaðar.

Azure small
Azure

Azure veitir öruggan og sveigjanlegan grunn fyrir gagnavinnslu, gervigreind og skýjaþjónustur sem styðja við nútíma rekstur.

Fabric
Innsýn með Power BI

Microsoft Power BI er öflugt greiningartól sem gerir notendum kleift að útbúa gagnalíkön og skýrslur með einföldum hætti.

BC
Business Central

Tengdu saman fjármál, sölu, þjónustu og rekstur í einu kerfi. Með Business Central færðu betri yfirsýn, einfaldari ferla og skýrari ákvarðanir.

Efni og greinar

Byggðu gagnadrifinn rekstur

Heyrðu í okkur

Microsoft Fabric einfaldar leiðina frá gögnum til ákvarðana. Með sameinuðu gagnalandslagi, öflugri greiningu og innbyggðri tengingu við Microsoft vistkerfið færðu betri yfirsýn, minni flækjur og sterkari grunn fyrir framtíðina.

Origo heldur utan um samskiptaupplýsingar þínar svo hægt sé að afgreiða beiðni þína. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hjá Origo hér.