
Snjallari vefverslanir
Ert þú að leita af vefverslun sem veitir viðskiptavinum framúrskarandi upplifun og einfaldar daglegan rekstur. Með réttum tengingum við viðskiptakerfi, birgðakerfi og greiðslulausnir verður auðveldara að sjálfvirknivæða ferla, bæta þjónustu og auka sölu.
Vertu í hópi ánægðra viðskipavina
Endalausir möguleikar fyrir vefverslunina
Tengingar við lykilkerfi
Tengdu vefverslunina við ERP-, birgða- og fjármálakerfi fyrir rauntímaupplýsingar um verð, lager og pantanir.
Sveigjanleg innskráning
Gerðu viðskiptavinum kleift að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum, Google, Facebook eða öðrum auðkenningarleiðum.
Öflug vörustýring
Haltu utan um vörur, verð, lagerstöðu, myndir og vöruflokka á einum stað með sjálfvirkum uppfærslum úr grunnkerfum.
Snjallari sala
Tengdar vörur, vörutillögur og sérsniðin kaupaupplifun hjálpa til við að auka sölu og bæta upplifun viðskiptavina.
Öflug leit og betri upplifun
Fljótleg leit, snjallar síur og skýr framsetning hjálpa viðskiptavinum að finna það sem þeir leita að hraðar.
Vildarkerfi og gjafabréf
Styrktu tengsl við viðskiptavini með vildarkerfum, gjafabréfum og öðrum lausnum sem hvetja til endurtekinna viðskipta.

Meira virði úr vefversluninni
Nýttu öfluga eiginleika sem styðja við sölu, bæta upplifun viðskiptavina og einfalda reksturinn. Frá alþjóðlegri sölu og mörgum verslunum yfir í vildarkerfi og persónulegar vörutillögur – lausnin þróast með þínum þörfum.




