Mynd
Hvernig geta rótgróin fyrirtæki skapað nýsköpunarmenningu?

Hvernig geta rótgróin fyrirtæki skapað nýsköpunarmenningu?

Hvernig geta rótgróin fyrirtæki skapað nýsköpunarmenningu sem knýr fram stafræna umbreytingu, skilvirkni og samkeppnisforskot – án þess að raski daglegu starfi? Alþjóðlegir og innlendir leiðtogar deila reynslu og innsýn.

14. May 2025

15:30

- 16:30

Hafnartorg Geirsgata 4

Dagskrá

03:30 PM - 03:45 PM
Búbblur og drykkir
03:45 PM - 04:15 PM
Pallborðsumræður með erlendum og innlendum reynsluboltum
Camila Medina, Zone Strategy Leader hjá Schneider Electric, Navroop Mitter forstjóri ArmorText - Secure communicaton, Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, Birna Dröfn Birgisdóttir, framkvæmdastjóri Bulby - Hugarflug fyrir fjarteymi
04:15 PM - 04:30 PM
Tengslamyndun og drykkir
04:30 PM - 04:30 PM
Fundarlok

Leiðtogar hver á sínu sviði

Þátttakendur í pallborði

Camila Medina
Camila Medina

Camila er verkfræðingur með sérþekkingu í iðnaðarhagfræði og orkutækni. Hún leggur áherslu á greiningu á orkustefnum í samtímanum og hvernig ný tækni getur orðið lykillinn að lausn einnar stærstu áskorunar okkar tíma — orkuklemmunnar. Á sama tíma og orkuþörf heimsins stefnir í að tvöfaldast, stöndum við frammi fyrir því að þurfa að helminga losun gróðurhúsalofttegunda til að vernda loftslag jarðar.

Navroop Mitter
Navroop Mitter

Navroop er áberandi persóna í heimi öruggra samskipta og er þekktur fyrir djúpa innsýn og framsýna nálgun við að mæta þörfum viðskiptavina. Hann hefur sýnt einstakan hæfileika til að greina mikilvæga virkni sem viðskiptavinir munu þurfa til að ná árangri, og oft veitt lausnir áður en þörfin verður ljós. Hann hefur víðtæka þekkingu á tækniumhverfi fyrirtækja enda unnið hjá heimsþekktum fyrirtækjum eins og Accenture.

Guðrún Aðalsteinsdóttir
Guðrún Aðalsteinsdóttir

Guðrún hefur lagt áherslu á stafræna umbreytingu, sjálfbærni og nýsköpun í rekstri Krónunnar og staðið fyrir samfélagsverkefnum fyrir þeirra hönd. Hún hefur alþjóðlega reynslu frá Nýja-Sjálandi, þar sem hún starfaði við ráðgjöf í rekstrarumbótum og stefnumótun í heilbrigðisþjónustu. Guðrún var pallborðsfyrirlesari á Enterprise Innovation 2025.

Birna Dröfn Birgisdóttir
Birna Dröfn Birgisdóttir

Birna er stofnandi og framkvæmdastjóri Bulby, hugbúnaðar sem nýtir gervigreind til að bæta hugmyndavinnu í teymum. Með yfir áratuga reynslu sem ráðgjafi, þjálfari, kennari og fyrirlesari hefur hún sérhæft sig í sköpunarferlum og nýsköpun, bæði í fræðum og atvinnulífi. ​Hún stundar doktorsnám við HR í með áherslu á sköpun og forystu.

Ari Daníelsson
Ari Daníelsson

Ari hefur lokið MBA-námi frá Háskólanum í Reykjavík og viðbótarnámi í alþjóðlegum stjórnarháttum (IDP) frá INSEAD í Frakklandi. Hann hefur einbeitt sér að því að nýta tækifæri til vaxtar og nýsköpunar hjá Origo, með skýra framtíðarsýn þar sem sjálfbærni og tækniframfarir eru í forgrunni. Ari býr yfir meira en 20 ára reynslu af stjórnarstörfum í fjármála- og upplýsingatæknigeiranum, bæði innanlands og á alþjóðlegum vettvangi.