Mynd
Kjarna viðbætur sem auka skilvirkni og starfsánægju

Kjarna viðbætur sem auka skilvirkni og starfsánægju

Kjarninn í þeim nýjungum sem kynntar verða á Notendaráðstefnu Kjarna 2024 eru verkfæri sem auka skilvirkni, starfsánægju og minnka starfsmannaveltu

8. May 2024

09:00

- 11:45

Gullteigur, 1. hæð, Grand Hótel Reykjavík

Dagskrá

09:00 AM - 09:00 AM
Morgunverðarhlaðborð
12:00 AM - 12:00 AM
Helstu nýjungar í Kjarna og vegvísir fyrir næsta árið
Halla Árnadóttir, forstöðumaður Mannauðs- og Launalausna Origo, og Þorgerður Guðný Guðmundsdóttir, vörustjóri Launahluta Kjarna
12:00 AM - 12:00 AM
Starfsmannaupplýsingar í Kjarna snjallforriti
Nína Margrét Daðadóttir, framendaforritari í Kjarna
12:00 AM - 12:00 AM
Rúna Launavakt vaktar launaþróun á markaði!
Þorgerður Guðmundsdóttir, vörustjóri Launahluta Kjarna
12:00 AM - 12:00 AM
Hlé og veitingar
12:00 AM - 12:00 AM
"DISCover Leadership" - til öflugri stjórnunar
Ingibjörg Lilja Þormóðsdóttir, mannauðsstjóri Helix Health og Rósa Björk Sigurgeirsdóttir, mannauðssérfræðingur hjá Origo
12:00 AM - 12:00 AM
Ávinningurinn af nýju samþykktarferli launa hjá Landsvirkjun
Harpa Víðisdóttir, mannauðsstjóri Landsvirkjunar
12:00 AM - 12:00 AM
Panelumræður með notendum Kjarna
11:45 AM - 11:45 AM
Fundarlok

Fyrirlesarar sem elska sitt fag

Fyrirlesarar

Halla Árnadóttir
Halla Árnadóttir

Halla hefur starfað í 20 ár sem sérfræðingur í hugbúnaði til mannauðsstjórnar og hefur brennandi áhuga á hvernig tæknin getur hjálpað fyrirtækjum til árangursríkari mannauðsstjórnunar, aukinnar starfsánægju og minni starfsmannaveltu.

Harpa Víðisdóttir
Harpa Víðisdóttir

Harpa á langan og farsælan feril sem mannauðsstjóri hjá Landsvirkjun og Verði tryggingum. Hún hefur brennandi áhuga á að skapa jákvætt og gefandi vinnuumhverfi og er í þeim tilangi sífellt að uppfæra þekkingu sína og innleiða ný tól til að ná betri árangri.

Ingibjörg Lilja Þormóðsdóttir
Ingibjörg Lilja Þormóðsdóttir

Ingsa, eins og hún er kölluð, er ástríðufullur nörd sem elskar að styrkja fólk, teymi og fyrirtæki til að verða sterkari, hraðari og árangursríkari á sjálfbæran hátt. Þetta hefur hún einmitt gert hjá fyrirtækjum eins og Trackwell, Taktikal, Controlant, Rafal og nú hjá Helix.

Nína Margrét Daðadóttir
Nína Margrét Daðadóttir

Nína Margrét er með BSc í Hugbúnaðarverkfræði frá HR og hefur sérhæft sig í vef- og framendaforritun. Áður en hún gekk til liðs við Kjarna teymið, vann hún hjá Bankalausnum Origo. Hún hefur ástríðu fyrir snjallri framendaforritun sem leiðir notandann áfram og auðveldar honum lífið.

Rósa Björk Sigurgeirsdóttir,
Rósa Björk Sigurgeirsdóttir,

Rósa er með BS gráðu í sálarfræði og MS gráðu í stjórnun. Hún hefur unnið sem sérfræðingur í mannauðstengdum málum í tæpan áratug. Þá hefur hún sérhæft sig í persónugreiningartólinu "DISC profile" enda áhugasöm um hvernig eiginleikar persónunnar geta skipt sköpum í hópavinnu og stjórnun.

Þorgerður Guðný Guðmundsdóttir
Þorgerður Guðný Guðmundsdóttir

Þorgerður hefur starfað um árabil sem ráðgjafi í launahluta Kjarna og er því vel þekkt meðal viðskiptavina. Hún hefur óbilandi áhuga á viðfangsefninu og hefur því verið valin sem vörustjóri Rúnu Launavaktarinnar, sem hún trúir að muni virkilega hjálpa íslenskum fyrirtækjum í ákvörðunum um launakjör.