Mynd
Tveir strákar að spjalla saman

Viva Engage

Það er auðveldara að ná árangri þegar allir vita hvað er um að vera. Viva Engage safnar innri samskiptum á einn stað og tengir starfsfólk þvert á deildir. Þannig styrkir þú fyrirtækjamenningu, einfaldar upplýsingaflæði og hvetur til aukinnar þátttöku starfsfólks.
Öflug innri samskipti

Hafðu allar mikilvægar tilkynningar og samræður á einum stað. Tryggðu að áherslur stjórnenda nái til alls starfsfólks og komdu í veg fyrir að mikilvægar upplýsingar týnist í tölvupósti.

Innri samskipti

Skapaðu vettvang þar sem starfsfólk deilir sigrum, hugmyndum og upplýsingum. Viva Engage hvetur til þátttöku starfsfólks og eykur samheldni.

Samþætting við Microsoft 365 og Teams

Viva Engage samþættist við Microsoft 365. Starfsfólk getur notað það beint inni í Teams þar sem vinnan fer nú þegar fram.

Við hjálpum þér alla leið

Sérfræðingar okkar aðstoða þig við að greina þarfir og væntingar, setja kerfið upp á réttan hátt og tryggja að starfsfólk nýti vettvanginn til fulls.

Þarfagreining

Við kortleggjum núverandi upplýsingaflæði og greinum hvar tækifæri til úrbóta liggja.

Jón Baldur
Ráðgjöf og uppsetning

Við tryggjum að aðgangsstýringar, öryggisstillingar og samþættingar séu í réttum farvegi.

Nína
Innleiðing og þjálfun

Tryggjum að starfsfólk læri að nýta vettvanginn á markvissan hátt.

Fabian
Miðlun og menning

Við hjálpum þér að skapa virkt samfélag á Viva Engage.

Esther

Fáðu enn meira út úr Viva Engage

Microsoft Teams

Microsoft Teams sameinar fólk, verkefni og gögn á einum stað. Við hjálpum þér að nýta Teams til að einfalda hópavinnu, auka yfirsýn og gera samstarfið markvissara.

Microsoft 365

Microsoft 365 sameinar öll helstu verkfærin þín. Með því að nýta vistkerfið til fulls tryggir þú örugga upplýsingagjöf, einfalda skjalastýringu og hnökralaust flæði á milli allra lausna.

Algengar spurningar

Viva Engage er samskiptavettvangur sem er hluti af Microsoft. Hann er hannaður til að styrkja innra upplýsingaflæði, byggja upp vinnustaðamenningu og tengja starfsfólk óháð deildum og staðsetningu.

Viva Engage skapar rými fyrir starfsfólk til að miðla hugmyndum og taka þátt í mikilvægum umræðum. Rannsóknir sýna að fyrirtæki sem nýta samfélagsvettvang í innri samskiptum upplifa meiri helgun og sterkari tengsl starfsfólks við vinnustaðinn.

Já svo sannarlega. Stjórnendur geta miðlað fréttum og áherslum beint til alls starfsfólks. Þetta er mun öflugri leið en hefðbundinn tölvupóstur þar sem starfsfólk getur brugðist við, spurt spurninga og tekið þátt í samræðum.

Já, Viva Engage býður upp á fjölbreytta og örugga aðgangsstýringu í gegnum Microsoft 365. Þú getur sett upp bæði opna og lokaða hópa, stýrt því hverjir mega birta efni eða stofna nýja hópa.

Vilt þú styrkja innri samskipti þíns fyrirtækis?

Sérfræðingar Origo hjálpa þér að meta hvernig Viva Engage nýtist þínum rekstri og tryggja farsæla innleiðingu.

Origo heldur utan um samskiptaupplýsingar þínar svo hægt sé að afgreiða beiðni þína. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hjá Origo hér.

Efni og greinar