Mynd

Gögn og gervigreind

Sameinaðu gögn úr ólíkum kerfum og byggðu traustan grunn fyrir greiningar, skýrslugerð og gervigreind. Með rétt uppbyggðu gagnavöruhúsi færðu skýrari yfirsýn, áreiðanlegri gögn og betri ákvarðanir.
Origo

Gerðu gögnin að forskoti

Byggðu upp öruggan og skalanlegan gagnagrunn sem gerir þér kleift að nýta gervigreind, sjálfvirknivæða ferla og fá betri yfirsýn yfir reksturinn, allt á einum stað. Með rétt uppsetum gagnainnviðum verður auðveldara að taka upplýstar ákvarðanir, bæta þjónustu og auka afköst án óþarfa flækjustigs.

Vöruhús gagna

Sameinaðu gögn úr ólíkum kerfum og tryggðu að upplýsingar flæði sjálfkrafa, örugglega og áreiðanlega þangað sem þeirra er þörf. Sterkir gagnainnviðir skapa grunninn að sjálfvirknivæðingu, greiningu og gervigreind.

Skýrslugerð og mælaborð

Fáðu skýra yfirsýn yfir það sem skiptir máli — í rauntíma. Mælaborð og skýrslur gera þér kleift að fylgjast með árangri, greina þróun og taka betri ákvarðanir hraðar.

Ferlasjálfvirknivæðing

Dragðu úr handavinnu og flöskuhálsum með sjálfvirkum ferlum sem spara tíma, minnka villur og einfalda dagleg verkefni fyrir starfsfólk.

Gervigreindarlausnir

Nýttu gervigreind þar sem hún skilar raunverulegum árangri — hvort sem markmiðið er að stytta svar­tíma, greina gögn hraðar, bæta þjónustu eða styðja starfsfólk í daglegum verkefnum.

Power apps

Með réttum gagnainnviðum og hagnýtri notkun gervigreindar verður auðveldara að einfalda reksturinn, bæta ákvarðanatöku og skapa meiri verðmæti úr þeim gögnum sem fyrirtækið á nú þegar. Lausnirnar hjálpa fyrirtækjum að vinna hraðar, draga úr handavinnu og skapa betri upplifun fyrir bæði starfsfólk og viðskiptavini.

Gögn sem skapa forskot

Tengdu saman gögn, fólk og tækni til að fá skýrari yfirsýn, hraðari ákvarðanatöku og meiri árangur.

Origo heldur utan um samskiptaupplýsingar þínar svo hægt sé að afgreiða beiðni þína. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hjá Origo hér.