Mynd
Menn að tala saman

Sjálfvirknivæðing skýrslugerðar með Power BI

Power BI umbreytir gögnum í skýra innsýn. Með sérsniðnum mælaborðum og skýrslum færðu betri yfirsýn yfir reksturinn og sterkari grunn fyrir upplýstar ákvarðanir.

1

Ein sýn á gögnin þín

400+

Mælaborð og skýrslur

15+

Vottaðir Power BI sérfræðingar

95%

Tímasparnaður í skýrslugerð

Af hverju velja fyrirtæki Power BI?

1
Rauntíma yfirsýn

Fylgstu með rekstrinum þegar hann gerist með lifandi mælaborðum og uppfærðum upplýsingum.

2
Betri ákvarðanir

Sameinaðu gögn úr ólíkum kerfum og fáðu áreiðanlega innsýn til að styðja við ákvarðanatöku.

3
Sérsniðnar skýrslur

Skoðaðu gögnin á þann hátt sem hentar þínum rekstri og þínum markmiðum.

4
Minni handavinna

Sjálfvirkar skýrslur og mælaborð spara tíma og draga úr villum.

Fáðu meira virði úr gögnunum þínum

Gögn eru verðmætust þegar þau styðja við ákvarðanatöku. Power BI hjálpar þér að sameina upplýsingar úr ólíkum kerfum og umbreyta þeim í skýra innsýn sem nýtist í daglegum rekstri.

BI
Tengingar við gögn

Tengdu Power BI við helstu kerfi fyrirtækisins og safnaðu gögnum á öruggan og sjálfvirkan hátt. Þannig færðu heildarsýn yfir reksturinn án handvirkrar samantektar.

Gagnamódel

Vel uppbyggð gagnamódel tryggja að gögnin séu samræmd, áreiðanleg og tilbúin til greiningar. Það skilar hraðari uppsetningu mælaborða og betri innsýn.

Tilbúin mælaborð og skýrslur

Fáðu aðgang að tilbúnum mælaborðum og skýrslum sem gera þér kleift að byrja strax að fylgjast með lykiltölum, þróun og árangri.

Allt sem þú þarft til að hefja gagnadrifna ákvarðanatöku

Business Central
Business Central

Sendir rekstrargögn eins og fjármál, sölu og birgðir inn í Power BI til greiningar.

Microsoft 365
Microsoft 365

Gerir kleift að deila Power BI skýrslum og vinna með gögn í daglegri samvinnu.

Azure
Azure

Hýsir og vinnur gögn sem Power BI nýtir til greiningar og skýrslugerðar.

Fabric
Microsoft Fabric

Sameinar og undirbýr gögn úr mörgum kerfum sem Power BI notar til innsýnar.

Power apps
Power apps

Notar gögn úr Power BI til að keyra aðgerðir og uppfærslur í rekstraröppum.

Foundry
Copilot Studios og Foundry

Greinir og túlkar gögn í Power BI til að spá fyrir og styðja ákvarðanir.

Viltu vita meira um viðskiptagreind?

Origo heldur utan um samskiptaupplýsingar þínar svo hægt sé að afgreiða beiðni þína. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hjá Origo hér.

Aðrar lausnir sem vinna með Power BI

CCQ gæðakerfi

Nota Power BI til að greina gögn (t.d. innkaup) og sýna sparnaðartækifæri.

SpendSenze innkaupagreining

Miðlar gæðagögnum sem Power BI nýtir til yfirsýnar og umbóta.

Efni og greinar