
Öruggur rekstur gervigreindar á Íslandi
Notkun gervigreindar í íslensku atvinnulífi hefur aukist hratt. Fyrir mörg fyrirtæki og stofnanir fylgja tækninni áskoranir um hvernig megi tryggja að gögn yfirgefi ekki íslenska lögsögu, hver hafi aðgang að þeim og hvort þau uppfylli strangar öryggiskröfur. Origo kynnir nýja þjónustu sem gerir fyrirtækjum og stofnunum kleift að keyra eigin gervigreindarlíkön í lokuðu og öruggu hýsingarumhverfi á Íslandi, þar sem gögnin eru áfram undir þeirra stjórn.
Í rúma tvo áratugi hefur Origo boðið viðskiptavinum sínum upp á hýsingu gagna og sýndarnetþjóna í öruggu skýjaumhverfi staðsettu í gagnaverum á Íslandi. Sjálfsafgreiðsla hefur verið í boði um árabil og nýta fjölmargir viðskiptavinir hana í dag fyrir mörg af sínum mikilvægustu kerfum.
Origo býður nú upp á sérhæfðan rekstur gervigreindar ofan á þrautreynda innviði, þar sem öll úrvinnsla fer fram innan íslenskrar lögsögu og í öruggu hýsingarumhverfi Origo. Þannig geta viðskiptavinir nýtt kraft gervigreindar án þess að fórna gagnavernd, öryggi eða sjálfstæði.
Hönnuð fyrir viðkvæma starfsemi
Þjónustan er sérstaklega ætluð aðilum sem vinna með viðkvæmar upplýsingar og þurfa að uppfylla strangar kröfur um persónuvernd og upplýsingaöryggi, svo sem sveitarfélögum, opinberum stofnunum, fjármálafyrirtækjum og heilbrigðisstofnunum.
Þessir aðilar sjá mikla möguleika í gervigreind til að auka skilvirkni, bæta þjónustu og styðja við ákvarðanatöku. Forsendan er einföld: Öryggið verður að vera í lagi.
Sveigjanleg hýsing sem tryggir bæði hraða og öryggi
Fyrir stóran hluta gagnavinnslu eru alþjóðlegar skýjalausnir á borð við Azure áfram skilvirk leið. En þegar kemur að viðkvæmustu kerfum, gögnum og gervigreindarlíkönum velja mörg fyrirtæki að halda rekstrinum innanlands. Fyrir marga er besta lausnin blönduð hýsingar- og rekstrarlausn þar sem almenn vinnsla fer fram í skýi en kjarnakerfi og viðkvæm gögn eru rekin í öruggu innlendu umhverfi.
Öruggt forskot með gervigreind
Markmið Origo er ávallt hið sama: Að hjálpa viðskiptavinum að ná forskoti með upplýsingatækni. Með öruggum innlendum gervigreindarinnviðum gerum við fyrirtækjum kleift að nýta tækifærin sem felast í gervigreind — án þess að fórna trausti, öryggi eða sjálfstæði.

Grótta - Örugg hýsing gervigreindar á Íslandi
Lærðu meira um hvernig þú getur hýst og rekið gervigreindarlíkön á öruggan hátt á Íslandi.

Aukinn viðnámsþróttur stafrænna innviða
Aldrei hefur verið mikilvægara fyrir stjórnendur að hafa skýra mynd af viðnámsþrótti stafrænna innviða ásamt vissu um að hægt sé að tryggja örugga endurheimt upplýsingakerfa. Rekstraráhættur íslenskra fyrirtækja á borð við netárásir eða náttúruhamfarir verða sífellt líklegri, umfangsmeiri og geta valdið verulegu tjóni fyrir viðskiptavini, starfsmenn og hluthafa. Til að lágmarka líkur á slíku tjóni hjálpum við viðskiptavinum okkar á kerfisbundinn hátt við að ná góðri yfirsýn yfir veikleika kerfa og hjálpum þeim að gera nauðsynlegar umbætur sem henta þeirra rekstrarmarkmiðum. Mótum skýra aðgerðaráætlun sem tryggir aukin viðnámsþrótt upplýsingakerfa.

