
Origo hlýtur netöryggisviðurkenningu Aftra
Öryggisátak Aftra fól í sér öryggisáskoranir í 4 vikur þar sem markmiðið var að efla öryggisvitund og styrkja grunnöryggi fyrirtækja.
Origo hlaut á dögunum viðurkenningu fyrir þátttöku og góðan árangur í netöryggisátaki Aftra, sem fór fram í október, alþjóðlega netöryggismánuðinum. Öryggisátak Aftra fól í sér öryggisáskoranir í 4 vikur þar sem markmiðið var að efla öryggisvitund og styrkja grunnöryggi fyrirtækja. Þau fyrirtæki sem tóku þátt og sýndu fram á góðan árangur hlutu viðurkenningu.
Netöryggisáskorun Aftra var ekki bara verkefni sem við hjá Origo kláruðum, hún var áminning um hversu mikilvæg ábyrgð í öryggismálum er. Við setjum okkur há viðmið og leggjum metnað í að tryggja að Origo sé fyrirmyndarfyrirtæki í netöryggi. Það að fá viðurkenningu frá Aftra sýnir að við erum á réttri leið með sameiginlega ábyrgð, agaða framkvæmd og sterka öryggisvitund.
Gunnlaugur Th Einarsson
CIO


Öruggur rekstur gervigreindar á Íslandi
Notkun gervigreindar í íslensku atvinnulífi hefur aukist hratt. Fyrir mörg fyrirtæki og stofnanir fylgja tækninni áskoranir um hvernig megi tryggja að gögn yfirgefi ekki íslenska lögsögu, hver hafi aðgang að þeim og hvort þau uppfylli strangar öryggiskröfur. Origo kynnir nýja þjónustu sem gerir fyrirtækjum og stofnunum kleift að keyra eigin gervigreindarlíkön í lokuðu og öruggu hýsingarumhverfi á Íslandi, þar sem gögnin eru áfram undir þeirra stjórn.

Aukinn viðnámsþróttur stafrænna innviða
Aldrei hefur verið mikilvægara fyrir stjórnendur að hafa skýra mynd af viðnámsþrótti stafrænna innviða ásamt vissu um að hægt sé að tryggja örugga endurheimt upplýsingakerfa. Rekstraráhættur íslenskra fyrirtækja á borð við netárásir eða náttúruhamfarir verða sífellt líklegri, umfangsmeiri og geta valdið verulegu tjóni fyrir viðskiptavini, starfsmenn og hluthafa. Til að lágmarka líkur á slíku tjóni hjálpum við viðskiptavinum okkar á kerfisbundinn hátt við að ná góðri yfirsýn yfir veikleika kerfa og hjálpum þeim að gera nauðsynlegar umbætur sem henta þeirra rekstrarmarkmiðum. Mótum skýra aðgerðaráætlun sem tryggir aukin viðnámsþrótt upplýsingakerfa.
