Mynd
Menn að tala saman

Skilvirkari vinnustaður með Microsoft 365

Með Microsoft 365 fær starfsfólkið réttu verkfærin til að vinna saman, deila upplýsingum og leysa verkefni á skilvirkan og öruggan hátt. Lausnin sameinar framleiðni, samskipti og öryggi í einu samræmdu og öflugu vinnuumhverfi.
Skipulögð samskipti

Einfaldaðu daglegan rekstur og upplýsingagjöf með verkfærum sem allir kunna á, eins og Teams, Word, Excel og Outlook.

Sveigjanleg skýjaþjónusta

Vistaðu gögnin í skýinu til að tryggja greiðan aðgang hvenær sem er og aukinn sveigjanleika í rekstri.

Öryggi á heimsmælikvarða

Verndaðu gögnin þín og starfsfólkið með innbyggðum öryggislausnum sem sjá til þess að verja fyrirtækið gegn stafrænum ógnum og netárásum.

Rétt samsetning fyrir þinn rekstur

Leyfaumhverfi Microsoft 365 getur reynst flókið yfirferðar. Með markvissri þarfagreiningu tryggjum við að fyrirtækið greiði ekki fyrir óþarfa virkni, heldur fái hnitmiðuð verkfæri sem hámarka skilvirkni í rekstri.

Þarfagreining

Sérfræðingar okkar greina núverandi ástand og tryggja að réttir hópar innan fyrirtækisins fái nákvæmlega þau leyfi sem henta þeirra þörfum.

Mummi
Fjöldi og gerð

Við sníðum leyfakaupin að þinni þörf og hámörkum nýtinguna svo þú greiðir aldrei meira en nauðsynlegt er.

Kristín
Nýtt verklag

Þú færð skýra áætlun um innleiðingu á nýju verklagi með Microsoft 365. Við tryggjum að breytingin verði eins einföld og árangursrík og hugsast getur.

Þorsteinn
Stuðningur

Við bjóðum upp á þjálfun fyrir starfsfólk og kennum því á nýja umhverfið svo leyfin nýtist sem skyldi.

Þórdís

Snjallara vinnuumhverfi

Afritun á Microsoft 365

Þó gögnin þín séu í skýinu er mikilvægt að tryggja að þau með sérstakri afritunarlausn gegn gagnatapi eða óhöpum.

365 Skýjarekstur

Láttu sérfræðinga Origo sjá um daglegan rekstur og stuðning við notendur svo þitt teymi geti einbeitt sér að kjarnastarfseminni.

Microsoft Business Central

Tengdu reksturinn og fjármálin við vinnuumhverfið þitt og fáðu betri yfirsýn með öflugri samþættingu Microsoft 365 og Business Central.

Microsoft 365 Copilot

Fáðu snjalla aðstoð við efnisgerð og úrvinnslu gagna með gervigreind sem er innbyggð í þín daglegu forrit.

Microsoft Teams

Tengdu teymið þitt saman með radd-, mynd- og textasamtölum í einu umhverfi sem gerir fjarvinnu og fundarhald einfaldara og skilvirkara.

Viva Engage

Styrktu tengslin og fyrirtækjamenninguna með innra umhverfi sem gerir starfsfólki kleift að deila þekkingu, fréttum og hugmyndum á einfaldan hátt.

Algengar spurningar

Microsoft 365 er heildarlausn sem sameinar það besta úr Office 365, Windows 11 Enterprise Mobility + Security. Það inniheldur kunnugleg forrit eins og Word, Excel, PowerPoint og Outlook ásamt öflugum skýjaþjónustum og öryggislausnum á heimsmælikvarða.

Sérfræðingar okkar greina núverandi ástand hjá þínu fyrirtæki og ráðleggja hvaða tegundir leyfa henta ólíkum hópum. Við hjálpum þér að ákveða nákvæmlega hversu mörg leyfi þarf af hverri gerð.

Kerfið inniheldur sérhæfð verkfæri sem hjálpa til við innleiðingu og eftirfylgni á persónuverndarlöggjöfinni. Sem dæmi má nefna Compliance Manager sem metur gagnaöryggi, fjölþátta auðkenningu og dulkóðun viðkvæmra gagna með Azure Information Protection.

Kerfið inniheldur sérhæfð verkfæri sem hjálpa til við innleiðingu og eftirfylgni á persónuverndarlöggjöfinni. Sem dæmi má nefna Compliance Manager sem metur gagnaöryggi, fjölþátta auðkenningu og dulkóðun viðkvæmra gagna með Azure Information Protection.

Já við bjóðum upp á fræðslu þar sem sérfræðingar okkar koma á vinnustaðinn, þjálfa starfsfólk og kenna því að nýta vinnuumhverfið á sem skilvirkastan hátt.

Ert þú með réttu Microsoft 365 leyfin fyrir þinn rekstur?

Við hjálpum þér að greina þarfirnar, lágmarka óþarfa kostnað og tryggja að teymið þitt hafi réttu verkfærin til að hámarka afköst í öruggu vinnuumhverfi.

Origo heldur utan um samskiptaupplýsingar þínar svo hægt sé að afgreiða beiðni þína. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hjá Origo hér.

Efni og greinar