Mynd
origo

Afritun og endurheimt sem þú getur treyst á

Tryggðu að gögn og kerfi séu endurheimtanleg þegar eitthvað fer úrskeiðis. Með öruggri afritun og reglulegum prófunum dregur þú úr áhættu og lágmarkar niðuritíma.

Hvað færðu með afritunarþjónustu Origo?

  • Stöðugt eftirlit með afritum

  • Reglulegar endurheimtarprófanir

  • Landfræðilega aðskilin gagnaver

  • Sjálfvirk viðbrögð við frávikum

  • Sveigjanleg geymsla og skalanleiki

  • Sjálfbær rekstur í íslenskum gagnaverum

Gögn sem eru tilbúin til endurheimtar

Afrit eru aðeins verðmæt ef hægt er að treysta þeim þegar á reynir. Þess vegna framkvæmum við reglulegar endurheimtarprófanir og fylgjumst stöðugt með að afrit virki sem skyldi. Þannig tryggir þú að gögn og kerfi séu tiltæk þegar þeirra er þörf.

Mynd
origo
Afritun á Microsoft 365 skýjaþjónustum

Microsoft 365 tryggir ekki fulla afritun gagna fyrir þitt fyrirtæki. Með sérhæfðri afritun fyrir Microsoft 365 getur þú endurheimt tölvupósta, skjöl, Teams gögn og SharePoint efni hratt og örugglega þegar þess þarf.

Algengar spurningar og svör

Við afritum skrifstofuumhverfið (Microsoft 365), vélbúnaðarþjóna (Windows, Linux, IBM AIX, Oracle Solaris), skýjaþjóna (Azure, AWS, Google Cloud), sýndarþjóna (VMware, VCloud, Nutanix, Hyper-V), gagnagrunna (Microsoft SQL, Oracle DB, MySQL, PostgeSQL, Mongo, Cassandra ofl.), kerfi (SAP Hana).

Þó að gögnin séu geymd í skýinu þýðir það samt ekki að það þurfi ekki að taka afrit af þeim. Sem dæmi má nefna að í skilmálum Microsoft stendur að gögn séu ávallt á ábyrgð viðskiptavina.

Gögnin eru spegluð á milli tveggja vottaðra gagnavera á Íslandi sem eru aðskilin landfræðilega.

Gert er ráð fyrir geymslutíma afrita sé upp á 32 daga samkvæmt stöðluðu ferli Origo en viðskiptavinur getur óskað eftir lengri geymslutíma eftir því hvaða sýndarþjón eða gagnagrunn er um að ræða.

Afrit er tekið að lágmarki einu sinni á sólarhring.

Þjónustan er gjaldfærð mánaðarlega en upphæðin fer eftir þjöppuðu gagnamagni sem er vistað hjá Origo eða fjölda virkra notenda.

Viðskiptavinir fá reglulega sendar skýrslur sem sýna stöðu á afritun. Sem dæmi hvort þjónustuloforð hafi staðist, hvað er í afritun og hversu mikið gagnamagn er notað.

Við búum yfir áratuga reynslu og þekkingu, öflugum innri ferlum og fjölda faggráða starfsfólks. Við erum stolt af mannauðinum okkar, sem er okkar helsta auðlind enda leggjum við okkur fram við að efla þekkingu starfsfólks. Við höfum fjárfest mikið í þjálfun og færni okkar starfsfólks svo viðskiptavinir okkar þurfi þess ekki.

Við leggjum mikla áherslu á að vera í góðu samstarfi við viðskiptavini til að tryggja öllum aðilum góðan árangur og öryggi í sínum rekstri.

Hjá Origo er mikil áhersla lögð á að veita góða þjónustu og ríkir sterk þjónustumenning innan fyrirtækisins. Við veitum viðskiptavinum okkar góða yfirsýn yfir þjónustuna, tækin, heilbrigði tækniumhverfis og kolefnisfótspor.

Ræðum hvernig þú verndar gögnin þín

Fáðu ráðgjöf um hvernig afritun og endurheimt getur dregið úr áhættu, stytt niðuritíma og styrkt rekstraröryggi fyrirtækisins.

Origo heldur utan um samskiptaupplýsingar þínar svo hægt sé að afgreiða beiðni þína. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hjá Origo hér.

Efni og greinar