Mynd
Þjónusta Origo

Byggðu framtíðina í Azure

Að flytja innviði, gögn og þjónustur í Azure þarf ekki að vera flókið. Með rétta samstarfsaðilann við hlið þér verður vegferðin skýrari, öruggari og markvissari. Sérfræðingar Origo vinna með þér frá fyrstu greiningu til innleiðingar og áframhaldandi þróunar. Með reynslu, ráðgjöf og skýrri aðferðafræði hjálpum við þér að byggja upp Azure umhverfi sem styður við markmið fyrirtækisins í dag og til framtíðar.

Skýjavegferðin

Þrátt fyrir margvíslega kosti skýjalausna krefst góð nýting þeirra sérþekkingar. Skýjateymið okkar vinnur samkvæmt ákveðinni aðferðafræði þegar kemur að innleiðingu skýjalausna.

1. Þarfagreining

Færðu kerfin í skýið

Við byrjum á að greina núverandi umhverfi, markmið og þarfir fyrirtækisins. Þannig fáum við skýra mynd af því hvað hentar best og hvar tækifærin liggja.

2. Mótum lausnina

Nýttu auðlindir eftir þörfum

Sérfræðingar okkar hanna Azure umhverfi sem styður við rekstur, öryggi og framtíðarþarfir fyrirtækisins. Þú færð skýra tillögu að uppbyggingu, vegferð og innleiðingu.

3. Tæknileg innleiðing

Flutningur ganga í Azure

Við sjáum um uppsetningu, prófanir og flutning í Azure á öruggan og skipulagðan hátt með lágmarks röskun á daglegum rekstri.

4. Þekkingarleg innleiðing

Fræðsla og stuðningur

Við tryggjum að starfsfólk hafi þekkingu og verkfæri til að nýta Azure umhverfið sem best með fræðslu, leiðbeiningum og ráðgjöf.

5. Áframhaldandi þróun

Eftirfylgni

Azure er ekki endastöð heldur vettvangur fyrir áframhaldandi þróun. Við fylgjum lausninni eftir og hjálpum þér að nýta ný tækifæri í skýinu eftir því sem reksturinn þróast.

Hvað getur Azure gert?

1
Keyrt forrit og þjónustur

Vefsíður, viðskiptakerfi, API þjónustur og sérlausnir.

2
Geymt og verndað gögn

Gagnagrunnar, afritun, skjalageymsla og endurheimt.

3
Tengt saman kerfi

Öruggar tengingar milli kerfa, staðsetninga og notenda.

4
Stutt við gervigreind og greiningu

Grunnurinn að Fabric, Copilot, gagnagreiningu og AI lausnum.

Grunnurinn að Microsoft vistkerfinu

Business Central
Business Central

Azure er grunnurinn að Business Central og tryggir öruggan rekstur, sjálfvirkar uppfærslur og sveigjanleika þegar fyrirtækið vex.

Microsoft 365
Microsoft 365

Microsoft 365 byggir á Azure og veitir starfsfólki örugg verkfæri fyrir samskipti, samvinnu og framleiðni hvar sem er.

Power BI
Power BI

Power BI nýtir Azure til að vinna úr og birta gögn á öruggan hátt þannig að þú fáir innsýn í reksturinn í rauntíma.

Fabric
Microsoft Fabric

Fabric byggir á Azure og sameinar gögn, greiningu og skýrslugerð í einu umhverfi sem styður við gagnadrifnar ákvarðanir.

Copilot
Copilot

Copilot nýtir Azure innviði og gervigreind Microsoft til að hjálpa starfsfólki að vinna hraðar, finna upplýsingar auðveldlega og sjálfvirknivæða verkefni.

Foundry
Foundry

Microsoft Foundry byggir á Azure og gerir fyrirtækjum kleift að þróa, prófa og reka sérsniðnar gervigreindarlausnir á öruggan og skalanlegan hátt.

Sjáðu hvað Azure getur gert fyrir þig.

Origo heldur utan um samskiptaupplýsingar þínar svo hægt sé að afgreiða beiðni þína. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hjá Origo hér.

Hvað færðu með Azure?

Sveigjanlegt skýjaumhverfi
  • Azure skalar með rekstrinum þínum og gerir þér kleift að bregðast hraðar við breytingum, vexti og nýjum kröfum.

Öryggi frá grunni
  • Innbyggðar öryggislausnir, aðgangsstýringar og vöktun hjálpa þér að vernda gögn, notendur og kerfi án óþarfa flækjustigs.

Byggt fyrir gögn og gervigreind
  • Azure skapar sterkan grunn fyrir gagnavinnslu, sjálfvirkni og hagnýtingu gervigreindar í daglegum rekstri.

Efni og greinar