
Rekstrarþjónusta sem þú getur treyst á
Tryggðu stöðugan rekstur, hraðari viðbrögð og aðgang að sérfræðingum sem fylgjast með umhverfinu allan sólarhringinn.
ISO 27001
Vottað öryggi
24/7
Vöktun allan sólarhringinn
ITIL
Rekstur samkvæmt bestu starfsvenjum
Hvað færðu með rekstrarþjónustu Origo?
Sérfræðingar sjá um reksturinn
Sérfræðiþekking þegar þú þarft á henni að halda
Fáðu aðgang að teymi sérfræðinga sem sér um vöktun, viðhald og daglegan rekstur upplýsingatæknikerfa. Þannig getur þitt teymi einbeitt sér að verkefnum sem skapa mest virði.
Bætt öryggi
Öryggi í stöðugri þróun
Kerfi og þjónustur eru vaktaðar, uppfærðar og verndaðar í takt við síbreytilegar netógnir. Þannig dregur þú úr áhættu og styrkir rekstraröryggi.
Fastur kostnaður
Betri stjórn á kostnaði
Fyrirsjáanlegur rekstrarkostnaður auðveldar áætlanagerð og dregur úr óvæntum útgjöldum vegna bilana eða sérverkefna.
Sjálfvirkt eftirlit
Sjálfvirkt eftirlit og hraðari úrlausnir
Kerfin þín eru vöktuð allan sólarhringinn með sjálfvirkum viðvörunum og skilgreindum viðbragðsferlum. Þannig eru frávik greind fyrr, viðbrögð hraðari og áhrif truflana minni.
Í yfir tvo áratugi hafa Icelandair Group félög haft sína upplýsingatækniþjónustu hjá Origo. Við höfum átt einstakt samband við hóp af sérfræðingum sem hafa sinnt okkur vel og með hraði. Origo er einn af okkar traustustu samstarfsaðilum.
Elísabet Halldórsdóttir
Forstöðumaður upplýsingatækni hjá Icelandair
Airport Associates hefur treyst Origo fyrir rekstri tölvukerfa sinna um árabil. Origo er áreiðanlegur samstarfsaðili og hefur reynst okkur vel í síbreytilegu umhverfi flugs á Keflavíkurflugvelli.
Rúnar Dór Daníelsson
Fjármálastjóri Airport Associates
Attentus hefur notið ráðgjafar og þjónustu Origo frá árinu 2016. Origo hefur tryggt okkur rekstraröryggi ásamt sérhæfðri þjónustu við starfsmenn í upplýsingatækni eftir þörfum hverju sinni. Frábær og fagleg þjónusta sem hefur verið okkur mikilvægur stuðningur.
Íris Björk Viðarsdóttir
Skrifstofustjóri Attentus
Lausnir sem vinna með rekstrarþjónustunni
Hýsing
Hýsing tryggir að kerfin þín keyri á stöðugum og öruggum innviðum sem þú getur treyst á. Það dregur úr truflunum og skapar traustan grunn fyrir alla aðra upplýsingatækni.
Netþjónusta
Netið er grunnurinn að daglegum rekstri. Við sjáum til þess að það sé áreiðanlegt, öruggt og tilbúið þegar mest á reynir.
Öryggislausnir
Við erum sérfræðingar í öruggu upplýsingatækniumhverfi og bjóðum fjölbreyttar öryggislausnir.
Sjálfvirkt eftirlit og hraðar úrlausnir
Kerfin þín eru vöktuð allan sólarhringinn með sjálfvirkum viðvörunarkerfi og fyrirfram skilgreindum viðbragðsáætlunum. Þegar frávik greinast bregst kerfið við sjálfkrafa – oft áður en þú tekur eftir því að eitthvað er að. Þannig minnka truflanir, viðbragðstími styttist og þú getur treyst því að reksturinn sé í góðum höndum – dag og nótt.
Gervigreind í þágu rekstursins
Við nýtum gervigreind til að greina mynstur og frávik í kerfum þínum – oft áður en vandinn kemur upp á yfirborðið. Það þýðir að við getum brugðist við fyrr, dregið úr niðritíma og veitt þér betri innsýn í heilsu kerfanna.