Mynd
origo

Netþjónusta sem þú getur treyst á

Netið er grunnurinn að daglegum rekstri. Með netþjónustu Origo færðu öruggt, stöðugt og vel vaktað netumhverfi sem styður við starfsemina allan sólarhringinn.

Traustir samstarfsaðilar

  • cloudflare
  • fortinet
  • Juniper

Hvað færðu með netþjónustu hjá Origo?

  • 24/7 vöktun og viðbragð
  • Aðlögum að þínum þörfum
  • Hágæða búnaður frá fremstu framleiðendum
  • Persónuleg þjónusta og stuðningur
  • Fyrirsjáanlegur kostnaður
  • Netöryggi hámarkað
Mummi og Ævar

Örugg og áreiðanleg netþjónusta

Fáðu öruggt og vel vaktað netumhverfi sem styður við daglegan rekstur. Við sjáum um vöktun, viðhald og rekstur netinnviða svo þú getir treyst á stöðugar tengingar og hratt viðbragð þegar á reynir.

Tengingar og netinnviðir

Við hönnum, setjum upp og rekum öruggar tengingar milli starfsstöðva, skýjaumhverfa og gagnavera. Þannig tryggjum við stöðugt aðgengi og samfelldan rekstur.

Netöryggi

Verndaðu þinn rekstur með því að nota eldveggi, innbrotavarnir, vefsíun, vírusvarnir, DDoS-varnir og aðgangsstýringar sem lágmarka áhættu og styrkja öryggi fyrirtækisins.

Varaleiðir og rekstraröryggi

Tvöfaldar tengingar og varaleiðir tryggja að netkerfið haldist virkt þótt upp komi bilanir eða truflanir.

Rekstur og viðhald

Við sjáum um stöðuga vöktun, uppfærslur og bilanagreiningu til að tryggja hámarksafköst og lágmarka niðritíma.

Fyrirbyggjandi vöktun

Frávik eru greind snemma og brugðist er við þeim áður en þau hafa áhrif á starfsemina. Þannig minnkar áhætta og reksturinn verður fyrirsjáanlegri.

Lausnir sem vinna með netþjónustunni

Hýsing og Rekstur

Öruggir innviðir, stöðug vöktun og sérfræðingar sem sjá um reksturinn. Þú færð áreiðanlegt umhverfi og meiri tíma til að einbeita þér að rekstrinum.

Notendaþjónusta

Fljótleg og persónuleg þjónusta sem hjálpar notendum að leysa mál hratt og halda vinnudeginum gangandi.

Öryggislausnir

Við erum sérfræðingar í öruggu upplýsingatækniumhverfi og bjóðum fjölbreyttar öryggislausnir.

Tryggjum að netið sé tilbúið þegar mest á reynir

Ræddu við sérfræðinga okkar um hvernig netþjónusta Origo getur aukið öryggi, stöðugleika og afköst í þínu umhverfi.

Origo heldur utan um samskiptaupplýsingar þínar svo hægt sé að afgreiða beiðni þína. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hjá Origo hér.