Mynd
origo

Láttu okkur sjá um tæknimálin

Við leysum úr tæknilegum vandamálum hratt og örugglega svo þú getir haldið áfram að vinna án truflana.

60 sek

Svartími í síma

30 sek

Svartími í netspjalli

94%

SLA (Service Level Agreement)

+88

NPS (Net promoter score)

Við erum til staðar þegar þú þarft á því að halda

Við tryggjum að tæknin vinni með þér – ekki á móti þér.

Með hraðari og áreiðanlegri notendaþjónustu lágmörkum við truflanir svo þú getir einbeitt þér að því sem skiptir máli.

origo
Tækniborð

Tæknileg vandamál eru leyst hratt og örugglega svo vinnan haldi áfram án truflana. Hvort sem það tengist kerfum, tengingum, tölvupósti eða neti eða daglegum stillingum ganga hlutirnir snurðulaust fyrir sig.

Vettvangsþjónusta

Við tryggjum að tölvubúnaður og vinnustöðvar séu tilbúnar til notkunar frá fyrsta degi og virki hnökralaust. Við sjáum um uppsetningu og viðhald á búnaði og vinnustöðvum þannig að starfsfólkið þitt geti hafið störf án tafar og unnið óhindrað.

Aðgangsstýring

Aðgangur að kerfum og búnaði er í samræmi við þarfir hverju sinni, með öruggum og skilvirkum hætti.

Tækjarekstur

Tæki og kerfi eru haldin uppfærð og vernduð svo dregið sé úr truflunum, áhættu og óvæntum stoppum í rekstri.

origo
Þjónustugátt

Viðskiptavinir í notendaþjónustu geta nýtt sér þjónustugátt Origo. Þar er hægt að nýta netspjall eða senda þjónustubeiðni.

Öryggi

Við tryggjum fyrsta flokks öryggi tækja og notenda. Origo rekur ISO 27001 vottað stjórnunarkerfi upplýsingaöryggis auk þess sem hjá fyrirtækinu starfa vottaðir sérfræðingar svo sem með ITIL og hinar ýmsu tæknigráður.

Sérfræðiþekking

Við búum yfir áratuga reynslu og þekkingu, öflugum innri ferlum og fagráðum. Við höfum fjárfest mikið í þjálfun og færni okkar starfsfólks svo að viðskiptavinir okkar þurfi þess ekki.

Framúrskarandi þjónusta

Hjá Origo er mikil áhersla lögð á að veita góða og persónulega þjónustu því árangur viðskiptavina skiptir okkur öllu máli. Við trúum að góð og gagnsæ samskipti séu lykillinn að farsælu samstarfi.

Algengar spurningar og svör

Við bjóðum notendavæna tækniþjónustu fyrir starfsfólkið þitt og þjónustum tækjabúnaðinn. Starfsfólkið þitt hefur aðgang að sérfræðingum okkar í gegnum fjarþjónustu á opnunartíma, sem og aðgengi að sérfræðingum sem mæta á staðinn ef þess þarf. Auk þess hefur starfsfólkið aðgang að sjálfsafgreiðslu allan sólarhringinn í gegnum starfrænar lausnir Origo. Við leggjum okkur fram við að vera aðgengileg og gagnsæ, og leggjum áherslu á að kynnast ykkur vel.

Viðskiptavinir okkar eiga það allir sameiginlegt að vilja stuðla að öryggi og tryggja starfsfólki sínu fyrsta flokks tækniþjónustu. Ekki öll fyrirtæki reka sína eigin upplýsingatæknideild eða kjósa jafnvel að hagræða í rekstrinum með því að velja frekar samstarfsaðila.

Þjónustan hentar allt frá smærri fyrirtækjum upp í þau stærstu, en við aðlögum þjónustuna að þínum rekstri.

Við búum yfir áratuga reynslu og þekkingu, öflugum innri ferlum og fjölda fagráða starfsfólks. Við erum stolt af mannauðinum okkar, sem er okkar helsta auðlind enda leggjum við okkur fram við að efla þekkingu starfsfólks. Við höfum fjárfest mikið í þjálfun og færni okkar starfsfólks svo viðskiptavinir okkar þurfi þess ekki.

Við leggjum mikla áherslu á að vera í góðu samstarfi við viðskiptavini til að tryggja öllum aðilum góðan árangur og öryggi í sínum rekstri.

Hjá Origo er mikil áhersla lögð á að veita góða þjónustu og ríkir sterk þjónustumenning innan fyrirtækisins. Við veitum viðskiptavinum okkar góða yfirsýn yfir þjónustuna, tækin og heilbrigði tækniumhverfis.

Þjónustan er aðlöguð að þörfum þíns reksturs, þú fyllir út formið hér fyrir neðan með upplýsingum um þitt fyrirtæki og söluráðgjafi okkar hefur samband og gerir þér tilboð. Greitt er mánaðargjald fyrir þjónustuna og þú þarft ekki að hafa áhyggjur af aukagjöldum eða öðrum óvæntum kostnaði.

Láttu okkur sjá um upplýsingatæknimálin þín

Hýsing og rekstur

Öruggir innviðir, stöðug vöktun og sérfræðingar sem sjá um reksturinn. Þú færð áreiðanlegt umhverfi og meiri tíma til að einbeita þér að rekstrinum.

Notendaþjónusta

Fljótleg og persónuleg þjónusta sem hjálpar notendum að leysa mál hratt og halda vinnudeginum gangandi.

Netþjónusta

Netið er grunnurinn að daglegum rekstri. Við sjáum til þess að það sé áreiðanlegt, öruggt og tilbúið þegar mest á reynir.

Þjónusta sem notendur geta treyst á

Fáðu ráðgjöf um hvernig notendaþjónusta Origo getur aukið ánægju notenda, stytt úrlausnartíma og létt á álagi innan fyrirtækisins.

Origo heldur utan um samskiptaupplýsingar þínar svo hægt sé að afgreiða beiðni þína. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hjá Origo hér.

Tækniaðstoð og notendaþjónusta | Origo. | Origo