Mynd
Mummi

Traustur grunnur fyrir reksturinn

Tryggðu stöðugan rekstur, aukið öryggi og hraðari viðbrögð þegar á reynir. Með rekstrarþjónustu Origo færðu traustan grunn fyrir daglegan rekstur og framtíðarvöxt.

99%

Uppitími

24/7

vöktun

300+

fyrirtæki í rekstri

ISO 27001

Vottað öryggi

Rekstrarþjónusta sem þú getur treyst á

Tryggðu stöðugan rekstur, hraðari viðbrögð og aðgang að sérfræðingum sem fylgjast með umhverfinu allan sólarhringinn.

Sérfræðingar sjá um reksturinn

Sérfræðiþekking þegar þú þarft á henni að halda

Fáðu aðgang að teymi sérfræðinga sem sér um vöktun, viðhald og daglegan rekstur upplýsingatæknikerfa. Þannig getur þitt teymi einbeitt sér að verkefnum sem skapa mest virði.

Bætt öryggi

Öryggi í stöðugri þróun

Kerfi og þjónustur eru vaktaðar, uppfærðar og verndaðar í takt við síbreytilegar netógnir. Þannig dregur þú úr áhættu og styrkir rekstraröryggi.

Fastur kostnaður

Betri stjórn á kostnaði

Fyrirsjáanlegur rekstrarkostnaður auðveldar áætlanagerð og dregur úr óvæntum útgjöldum vegna bilana eða sérverkefna.

Sjálfvirkt eftirlit

Sjálfvirkt eftirlit og hraðari úrlausnir

Kerfin þín eru vöktuð allan sólarhringinn með sjálfvirkum viðvörunum og skilgreindum viðbragðsferlum. Þannig eru frávik greind fyrr, viðbrögð hraðari og áhrif truflana minni.

Þjónusta Origo

Örugg hýsing í íslenskum gagnaverum

Fáðu öruggt og stöðugt rekstrarumhverfi fyrir kerfi og gögn. Með hýsingu í íslenskum gagnaverum tryggir þú aukið öryggi, rekstrarþol og fulla stjórn á því hvar gögnin þín eru vistuð.

Hýsing sem þú getur teyst á

1
Meira rekstraröryggi

Stöðugur rekstur sem styður við vöxt fyrirtækisins

2
Minni áhættu

Lágmarkar áhrif bilana og óvæntra atvika

3
Hraðari viðbrögð við atvikum

24/7 vöktun og þjónusta þegar mest á reynir

4
Öruggari gögn og kerfi

Öryggi og vernd innbyggð í lausnina

5
Fyrirsjáanlegan kostnað

Skýr rekstrarkostnaður án óvæntra útgjalda

Öruggur rekstur

Við leysum allan daglegan rekstur upplýsingatækni kerfa - frá vöktun og þjónustu til stöðugra umbóta og rekstraröryggis.

Hýsing gervigreindar

Grótta er rekstrarþjónusta frá Origo sem gerir fyrirtækjum og stofnunum kleift að keyra gervigreindarlíkön í lokuðu og öruggu skýjaumhverfi á Íslandi.

Notendaþjónusta

Við leysum úr tæknilegum vandamálum hratt og örugglega svo þú getir haldið áfram að vinna án truflana.

Netþjónusta

Netið er grunnurinn að daglegum rekstri. Við sjáum til þess að það sé áreiðanlegt, öruggt og tilbúið þegar mest á reynir.

365 Skýjarekstur

Rekstrarþjónusta Origo hjálpar þér að hámarka öryggið í Microsoft 365 umhverfinu þínu.

Ræðum rekstrarumhverfið þitt

Fáðu ráðgjöf um hvernig hýsingar- og rekstrarþjónusta Origo getur aukið stöðugleika, öryggi og rekstrarþol fyrirtækisins.

Origo heldur utan um samskiptaupplýsingar þínar svo hægt sé að afgreiða beiðni þína. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hjá Origo hér.

Tækniborð Origo

Tækniborðið okkar veitir viðskiptavinum fyrsta flokks þjónustu við úrlausn UT-mála. Tækniborðið sníður aðstoð að þörfum viðskiptavina og veitir góða yfirsýn.

Tækniborðið notast við ITIL aðferðafræðina sem er sú útbreiddasta í þjónustu og rekstri upplýsingatæknikerfa.

  • Fyrsta stigs þjónusta sem miðar að því að veita úrlausn án tafar.
  • Eftirlit með framgangi þjónustubeiðna.
  • Upplýsingagjöf til viðskiptavina og skýrslugerð um umfang og framkvæmd.
  • Vinna við aðgangsstýringu.
  • Aðstoð við bilanagreiningu fyrir notendur.
  • Staðfesting á að viðskiptavinur hafi fengið þá þjónustu sem óskað var eftir.
  • Trygging á réttri skráningu verkbeiðna, skjölun og lokun beiðna.
  • Tillögur að úrbótum í ferlum.

  • Stjórnun atvika (Incident Management).
  • Stjórnun aðgangs (Access Management).
  • Þjónustubeiðnir (Request Fulfillment Management).
  • Greining og úrvinnsla undirliggjandi vanda (Problem Management).

Afgreiðslutíminn veltur á því hvaða þjónustuleið er valin:

  • Almennur opnunartími: 08:00 til 17:00 virka daga og frá 10:00-14:00 á laugardögum
  • Opnunartími allan sólarhringinn alla daga.