Réttar tölur, án handavinnu
Við tengjum saman gögn úr ólíkum kerfum og byggjum gagnagrunn sem skilar áreiðanlegum skýrslum og er tilbúinn fyrir gervigreind.

Vandamálið: Kannastu við þetta?
- Tölurnar eru í mörgum kerfum og enginn treystir sömu tölunni.
- Mánaðarskýrslur eru settar saman handvirkt í Excel.
- Þið viljið nýta gervigreind, en gögnin eru ekki tilbúin.
Svona byggjum við grunninn
Tengjum
Við sækjum gögn úr helstu kerfum: ERP, CRM, Excel og öðrum gagnalindum.

Sameinum
Gögnin fara á einn stað, svo allir vinna út frá sömu tölum.

Hreinsum
Gögnin eru samræmd og gæðaprófuð svo hægt sé að treysta þeim.

Nýtum
Mælaborð í Power BI, sjálfvirkar skýrslur og grunnur fyrir gervigreind.

Úr mánaðarskýrslum í rauntímainnsýn
Gögn Bláa Lónsins voru dreifð á mörg ótengd kerfi fyrir hótel, heilsulindir, verslanir og veitingar. Nú eru lykilgögn uppfærð á nokkurra mínútna fresti og stjórnendur sjá alla starfsemina á einu mælaborði.
„Við fórum úr því að skoða hvað gerðist í gær yfir í að skilja hvað er að gerast núna – og hvað er líklegt til að gerast næst.“
— [Nafn, titill], Bláa Lónið
Tæknin sem við notum
Microsoft Fabric
Öll gögn á einum stað í Microsoft-umhverfinu.
TimeXtender
Sjálfvirk gagnaöflun, samræming og gæðastýring
Databricks
Vinnsla og greining á stórum gögnum.
Power BI
Mælaborð og skýrslur fyrir stjórnendur.

Gagnastöðumat
Við förum yfir kerfin ykkar og gagnaflæði og skilum tillögu að gagnagrunni og fyrstu skrefum.
