Stafrænt Ísland: Skilvirkari þjónusta með stafrænum ferlum

Viðskiptavinur

Þjónusta
Greining
Forritun
Sjálfvirknivæðing
Verkefnastýring
Öryggi
Markmið
Þjónustu upplifun
576.000+
umsóknir afgreiddar á Island.is.
51%
aukning í stafrænum umsóknum milli ára.
Sjálfvirkni
Sakavottorð, vegabréf og vinnuvélaskírteini nú aðgengileg á örfáum sekúndum.
Aukin ánægja
Með styttri biðtíma

Opinber þjónusta: einföld í notkun, flókin í bakgrunni
Á bak við hverja þjónustu á Island.is leynist flókin samþætting: gagnaskipti milli stofnana, lagalegar kröfur og öryggisferlar sem þurfa að virka í hvert skipti. Origo hefur verið lykil samstarfsaðili í að brúa bilið á milli flókinnar tækni og notendavænnar upplifunar.

Áskorunin
Mörg opinber ferli voru í langan tíma bundin við pappír, handavinnu og biðtíma. Að færa þessi ferli yfir í stafrænt form er meira en tæknilegt verkefni, það krefst þess að samræma gagnaflæði á milli stofnana, skilgreina ábyrgðir og endurhanna þjónustuna frá grunni með fólk að leiðarljósi frekar en kerfi.
„Origo hefur reynst traustur samstarfsaðili. Verkefnin hafa gengið vel með skýru verklagi og góðu samstarfi sem hefur skilað raunverulegum umbótum í þjónustu.“
Vésteinn Viðarsson
Stafræns Íslands

Nálgunin
Origo byrjar alltaf á greiningu áður en fyrsta línan af kóða er skrifuð. Ferlar eru kortlagðir, hagsmunaaðilar greindir, gagnastreymi skilgreint og lagalegar og öryggislegar forsendur rýndar, þannig tryggir Origo að tæknin virki í bakgrunni og einfaldleikinn birtist notandanum.
Bak við hverja lausn er þverfaglegt teymi forritara, hönnuða, verkefnastjóra og sérfræðinga í öryggi og ferlum. Með lipru vinnulagi er þróað í stuttum lotum, árangur mældur og byggt ofan á hann með stöðugum umbótum.

