Mynd

Veðurstofa Íslands

Gott veður

Viðskiptavinur

Veðurstofa Íslands

Þjónusta

Notendaupplifun

Greining

Vefhönnun

Vefþróun

Öryggi

Markmið

Heildstæð endurnýjun á upplýsingatækniumhverfi Veðurstofunnar.

Er komið gott veður
Einn mest sótti vefur landsins, endurgerður frá grunni

Vedur.is er órjúfanlegur hluti af daglegu lífi Íslendinga. Þegar eldgos gýs eða rok er á leið, er þetta fyrsti viðkomustaðurinn. Ár hvert fær vefurinn miljónir heimsókna til að fá nákvæmar og áreiðanlegar upplýsingar um veður, náttúrufar og vá. 

Þrátt fyrir lykilhlutverk sitt í þjóðlífi landsins keyrði vefurinn á 18 ára gamalli tækni, réð illa við mikið álag og uppfyllti ekki nútímakröfur um aðgengi og farsímastuðning. Veðurstofa Íslands fól Origo að leiða heildstæða umbreytingu bæði á tæknilegu og hönnunarlegu sviði. 

Áskorunin

Gamla kerfið fól í sér umtalsverða tækniskuld. Bakendinn byggði á DB2 gagnagrunni og eldri innviðum sem gerðu það erfitt að þjóna þúsundum notenda á sama tíma, sérstaklega við náttúruhamfarir þegar gríðarlegt álag fellur skyndilega á vefinn. 

Helstu markmið verkefnisins voru: 

1
Áreiðanleiki og uppitími

Vefuralltaf aðgengilegur, jafnvel við hámarksálag 

2
Betri notendaupplifun

Nútímalegt viðmót sem virkar á öllum tækjum 

3
Aukið aðgengi

Uppfyllir stranga aðgengisstaðla  

4
Minni rekstraráhætta

Bilanir hafa ekki áhrif á heildarkerfið

5
Framtíðarhæf tækni

Grunnur fyrir frekari þróun og nýtingu veðurgagna

Tæknilegar nýjungar

Origo sá um heildstæða enduruppbyggingu tækniinnviða. Gagnagrunns­kerfið var flutt yfir í PostgreSQL og sett upp API Management millilag sem opnar á nýja möguleika í notkun og dreifingu veðurgagna. 

Framendinn byggir á Micro Frontend arkitektúr þar sem kerfið er skipt í sjálfstæðar einingar. Þetta þýðir að ef einn hluti kerfisins verður óvirkur, halda aðrir hlutar áfram að virka, gríðarlega mikilvægt þegar kemur að þjónustu sem þarf að vera aðgengileg allan sólarhringinn, alla daga ársins. 

Með Azure Kubernetes þjónustu skalar kerfið sig sjálfvirkt eftir álagi, sem reyndist sérstaklega mikilvægt við náttúruhamfarir þegar heimsóknir aukast skyndilega. 

Gott veður
Hönnun í samstarfi við Metall

Metall Design Studio annaðist vefhönnun og lagði áherslu á skýrleika, einfaldleika og nútímalega framsetningu. Litapallettan er innblásin af gömlum kortagögnum Veðurstofunnar, hlý og mjúk, en með skörpum hagnýtum formum. 

Gott veður
Vantar titil

Viðvörunarkerfið hlaut sérstaka meðhöndlun: notendakannanir sýndu að hefðbundnir viðvörunarborðar náðu ekki alltaf athygli. Nýjar leiðir voru þróaðar til að tryggja að mikilvægar viðvaranir um náttúruvá færu ekki fram hjá notendum. 

Kortaframsetning veðurgagna er útfærð með Maptiler SDK og gerir upplýsingarnar mun sjónrænni og aðgengilegri en áður. 

Árangurinn

Nýr vedur.is er öruggari, hraðvirkari og aðgengilegri en nokkru sinni fyrr. Vefurinn þjónar íslensku þjóðinni með nákvæmari og tíðari upplýsingum, í kerfi sem er betur í stakk búið til að takast á við stærstu augnablikin. 

Þetta er ekki endapunktur heldur grunnur að frekari stafrænni umbreytingu Veðurstofunnar — með opinn API sem gerir kleift að þróa ný verkefni og þjónustur á grunni veðurgagnanna. 

Teymið

Digital Labs hannar og þróar stafrænar lausnir með áherslu á notendaupplifun, nýsköpun og hraða innleiðingu. Sviðið vinnur náið með viðskiptavinum að hönnun, þróun og prófun hugbúnaðar sem styður við stafræna vegferð fyrirtækja. Með blöndu af tæknilegri sérþekkingu og hönnunarhugsun hjálpar Digital Labs fyrirtækjum að umbreyta hugmyndum í virk og verðmæt stafræn verkfæri.