
Íslensk fyrirtæki búast við aukningu netárása
90% stjórnenda íslenskra fyrirtækja búast við að netárásir færist í aukana á þessu ári. 15% búast við mikilli aukningu og 75% við nokkurri aukningu árása. 10% búast við óbreyttu árteiti, að því er fram kemur í könnun Gallup, sem gerð var fyrir Origo.
Lítill munur var á viðhorfi fyrirtækja annars vegar á höfuðborgarsvæðinu og hins vegar á landsbyggðinni. Þá var lítill munur á viðhorfi fyrirtækja á neytendamarkaði eða fyrirtækjamarkaði eða út frá stærða eða veltu.
Úrtakið voru fyrirtæki með fjóra starfsmenn eða fleiri, handahófsvalin úr fyrirtækjaskrá og viðhorfshópi Gallup. Gagnaöflun stóð yfir þar til u.þ.b. 400 svörum var náð.
Vaxandi áhyggjur af netárásum einskorðast ekki aðeins við Ísland en víða er gert ráð fyrir að fjöldi árása fari vaxandi og um leið sá kostnaður sem hlýst af slíkum árásum, ef marka má colbat.io. Þá segir í könnun PWC að 71% æðstu stjórnenda fyrirtækja í Bandaríkjunum hafi miklar áhyggjur af netárásum.
Einn helsti sérfræðingur í netöryggi með vefvarp hjá Origo
Könnun Gallup og Origo var gerð í tengslum við vefvarp Origo þann 15. apríl með Charlie McMurdie, einum helsta sérfræðingi heims í netöryggi og aðgerðum gegn tölvuárásum.
McMurdie starfaði í 32 ár í lögreglunni í Bretlandi þar sem hún stofnaði og stýrði tölvudeild sem tókst á við tölvuglæpi og netárásir. Hún starfaði einnig í netöryggissveitinni fyrir Ólympíuleikana í London 2012 og var síðast yfirráðgjafi tölvubrota hjá PwC.
Í vefvarpnu mun McMurdie ræða sína reynslu af stórum verkefnum, svo sem frá Ólympíuleikunum í Lundúnum, aukna getu tölvuþrjóta til þess að herja á fyrirtæki og einstaklinga og hvernig við getum brugðist við þessari vaxandi óárán.

Öruggur rekstur gervigreindar á Íslandi
Notkun gervigreindar í íslensku atvinnulífi hefur aukist hratt. Fyrir mörg fyrirtæki og stofnanir fylgja tækninni áskoranir um hvernig megi tryggja að gögn yfirgefi ekki íslenska lögsögu, hver hafi aðgang að þeim og hvort þau uppfylli strangar öryggiskröfur. Origo kynnir nýja þjónustu sem gerir fyrirtækjum og stofnunum kleift að keyra eigin gervigreindarlíkön í lokuðu og öruggu hýsingarumhverfi á Íslandi, þar sem gögnin eru áfram undir þeirra stjórn.

Aukinn viðnámsþróttur stafrænna innviða
Aldrei hefur verið mikilvægara fyrir stjórnendur að hafa skýra mynd af viðnámsþrótti stafrænna innviða ásamt vissu um að hægt sé að tryggja örugga endurheimt upplýsingakerfa. Rekstraráhættur íslenskra fyrirtækja á borð við netárásir eða náttúruhamfarir verða sífellt líklegri, umfangsmeiri og geta valdið verulegu tjóni fyrir viðskiptavini, starfsmenn og hluthafa. Til að lágmarka líkur á slíku tjóni hjálpum við viðskiptavinum okkar á kerfisbundinn hátt við að ná góðri yfirsýn yfir veikleika kerfa og hjálpum þeim að gera nauðsynlegar umbætur sem henta þeirra rekstrarmarkmiðum. Mótum skýra aðgerðaráætlun sem tryggir aukin viðnámsþrótt upplýsingakerfa.
