
Hvernig tryggjum við netöryggi fyrirtækja?
Myndir þú ekki vilja vita hvernig gengur hjá þínu fyrirtæki að verja reksturinn fyrir innbrotum og útföllum? Og fá viðamikið og greinagott mat á stafrænum innviðum rekstursins?
Öryggismat Origo hjálpar minni og meðalstórum fyrirtækjum að greina stöðu og öryggi stafrænna lausna og gagna. Að því loknu færð þú skýrslu með styrkleikum, veikleikum og mögulegum úrbótum.
Lykilatriði í að laga öryggismálin
Þekking á netöryggi er stórlega ábótavant hjá stjórnendum íslenskra fyrirtækja, samkvæmt könnun sem gerð var af Stafræna hæfniklasanum í lok ársins 2021. Margir stjórnendur eru óöruggir með það hvernig og hvar þeir eigi að hefja öryggisvegferð fyrirtækisins. En hvernig gæti þitt fyrirtæki farið af stað í því að laga öryggismálin hjá sér? Í gegnum Öryggismat Origo fer fyrirtækið í gegnum þrjú mikilvæg skref:
- Sérfræðingar Origo gera öryggismat og meta rekstrarumhverfi þitt og teikna það upp út frá öryggis-þroskastigi Origo.
- Ef í ljós koma veikleikar á sér næst stað tæknileg innleiðing á viðeigandi öryggislausnum eða aðgerðum. Að því loknu yfirfærum við þekkingu á rekstri lausnanna til starfsfólks fyrirtækisins.
- Við tökum svo frá tíma til að fylgja á eftir innleiðingunni þinni og nýtingu öryggislausnanna sem við lögðum til.
Þið eruð svo velkomin í annað mat í framtíðinni enda eru stafrænar lausnir í stöðugri þróun.
Góð reynsla viðskiptavina
Origo er búið að framkvæma öryggismat hjá nokkrum íslenskum fyrirtækjum með góðum árangri. Sum fyrirtæki töldu sig ekki þurfa á slíku mati að halda og voru viss um að stafrænir innviðir þeirra væru vel tryggðir. Þeim fannst þó mikill léttir að fá staðfestingu á góðum rekstrarháttum með Öryggismati Origo og fengu að auki nokkrar tillögur að úrbótum. Reykjafell er einn af okkar ánægðu viðskiptavinum en Þórður Illugi Bjarnason, framkvæmdastjóri Reykjafells, fór í gegnum Öryggismat Origo:
Ég vildi vita hvar við stæðum og niðurstaðan var gríðar gagnleg. Hún kom ánægjulega á óvart og gaf mér svona heildaryfirsýn yfir alla stöðu öryggisþátta í öllu þessu umhverfi sem maður er að reyna halda utan um í dags daglega í rekstrinum. Þetta var mjög gagnlegt og eitthvað sem ég tel að öll fyrirtæki ættu að huga vel að.
Þórður Illugi Bjarnason
Framkvæmdastjóri Reykjafells
En af hverju öryggi stafrænna innviða?
Stafrænir innviðir eru í dag flestum rekstri mjög mikilvægir og með einföldum aðgerðum getur þú aukið öryggi þeirra. Stafrænir innviðir gera fyrirtækjum kleift að starfrækja sig með kerfum sem koma að sölu, bókunum, fjárhagi, bókhaldi og samskiptum svo eitthvað sé nefnt. Öryggismat Origo hjálpar þér að tryggja öruggari rekstur og fá greinagott mat á stafrænum innviðum rekstursins.

Öruggur rekstur gervigreindar á Íslandi
Notkun gervigreindar í íslensku atvinnulífi hefur aukist hratt. Fyrir mörg fyrirtæki og stofnanir fylgja tækninni áskoranir um hvernig megi tryggja að gögn yfirgefi ekki íslenska lögsögu, hver hafi aðgang að þeim og hvort þau uppfylli strangar öryggiskröfur. Origo kynnir nýja þjónustu sem gerir fyrirtækjum og stofnunum kleift að keyra eigin gervigreindarlíkön í lokuðu og öruggu hýsingarumhverfi á Íslandi, þar sem gögnin eru áfram undir þeirra stjórn.

Aukinn viðnámsþróttur stafrænna innviða
Aldrei hefur verið mikilvægara fyrir stjórnendur að hafa skýra mynd af viðnámsþrótti stafrænna innviða ásamt vissu um að hægt sé að tryggja örugga endurheimt upplýsingakerfa. Rekstraráhættur íslenskra fyrirtækja á borð við netárásir eða náttúruhamfarir verða sífellt líklegri, umfangsmeiri og geta valdið verulegu tjóni fyrir viðskiptavini, starfsmenn og hluthafa. Til að lágmarka líkur á slíku tjóni hjálpum við viðskiptavinum okkar á kerfisbundinn hátt við að ná góðri yfirsýn yfir veikleika kerfa og hjálpum þeim að gera nauðsynlegar umbætur sem henta þeirra rekstrarmarkmiðum. Mótum skýra aðgerðaráætlun sem tryggir aukin viðnámsþrótt upplýsingakerfa.
