Mynd
origo

Fáðu skýra mynd af stöðu netöryggis og rekstrarþols

Undirbúðu fyrirtækið fyrir auknar kröfur um öryggi og áhættustýringu. Við aðstoðum fyrirtæki og stofnanir við að undirbúa sig fyrir kröfur NIS2 og DORA. Með stöðumati færðu skýra mynd af núverandi stöðu, helstu áhættum og aðgerðum sem skila mestum árangri.

Styrktu öryggi og rekstrarþol fyrirtækisins

NIS2 og DORA gera auknar kröfur til netöryggis, áhættustýringar og rekstrarþols. NIS2 nær til fyrirtækja og stofnana sem teljast til mikilvægra innviða, en DORA beinist að fjármálafyrirtækjum og þjónustuaðilum þeirra.

NIS2 og Dora

Með stöðumati færðu skýra mynd af núverandi stöðu, helstu áhættum og þeim gloppum sem þarf að loka. Niðurstaðan er forgangsröðuð aðgerðaáætlun sem hjálpar þér að styrkja öryggi, auka rekstrarþol og undirbúa fyrirtækið fyrir kröfurnar sem fram undan eru.

Skúli Geir Jensson
„Vinnan og afurðirnar voru faglegar og ljóst að sérfræðingar Origo voru með yfirgripsmikla þekkingu á þessu flókna verkefni. Við fengum bæði staðfestingu á því sem við teljum okkur vera góð í og því sem skortir á.“

Skúli Geir Jensson

Forstöðumaður upplýsingatækni hjá Gildi.

Veistu hvar þú stendur?

Fáðu skýra mynd af stöðunni í dag, hvaða kröfur eiga við um þitt fyrirtæki og hvernig best er að undirbúa næstu skref.

Origo heldur utan um samskiptaupplýsingar þínar svo hægt sé að afgreiða beiðni þína. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hjá Origo hér.

Efni og greinar