Mynd
Þjónusta Origo

Náðu forskoti með Gróttu, öruggri gervigreind

Með Gróttu byggjum við á þrautreyndum innviðum og sérþekkingu til að gera fyrirtækjum kleift að nýta gervigreind á öruggan og ábyrgan hátt.

Íslenskt skýjaumhverfi

Með Gróttu heldur þú gögnunum undir þinni stjórn 

Full stjórn á gögnum

Gögnin þín yfirgefa ekki íslenska lögsögu. Þú ákveður hver hefur aðgang að þeim og hvernig þau eru nýtt. Þetta er sérstaklega mikilvægt fyrir fyrirtæki og stofnanir sem vinna með viðkvæmar upplýsingar. 

Örugg innleiðing gervigreindar

Nýttu gervigreind í rekstri, þjónustu og ákvarðanatöku án þess að taka óþarfa áhættu. Við sjáum um innviði, rekstur, vöktun og öryggi svo þú getir einbeitt þér að verðmætasköpun. 

Betri afköst og minni töf

Þegar vinnslan fer fram innanlands styttist svartími og þjónustan verður hraðvirkari. Það skiptir máli þegar gervigreind er orðin hluti af daglegum rekstri. 

Sveigjanleiki til að velja rétt líkön

Keyrðu opin gervigreindarlíkön, sérsniðnar lausnir eða eigin líkön í sama umhverfi. Þú velur tæknina sem hentar þínum þörfum. 

Stuðningur við reglur og kröfur

Grótta hjálpar þér að uppfylla kröfur um persónuvernd, upplýsingaöryggi og gagnastjórnun. Lausnin hentar sérstaklega vel fyrir opinbera aðila, fjármálafyrirtæki og aðra sem starfa í regluumhverfi. 

Mynd

Gervigreind á þínum forsendum

Mörg fyrirtæki vilja nýta gervigreind en standa frammi fyrir kröfum um persónuvernd, gagnavistun og öryggi. Með Gróttu fer öll úrvinnsla fram á Íslandi í lokuðu og öruggu umhverfi. Þannig haldast gögnin undir þinni stjórn á sama tíma og þú nýtir nýjustu tækni til greiningar, sjálfvirknivæðingar og nýsköpunar. 

Við sjáum um reksturinn 

Origo sér um uppsetningu, rekstur, vöktun og öryggi innviðanna svo þú getir einbeitt þér að því að skapa virði úr gögnum og gervigreind. Þú færð aðgang að öflugri tækni, sérfræðingum og öruggu rekstrarumhverfi án þess að byggja upp eigin innviði. 

Fyrir hverja er grótta?

Grótta hentar fyrirtækjum og stofnunum sem vilja nýta gervigreind en þurfa jafnframt að tryggja öryggi, gagnavernd og fullt gagnaveldi. 

  • Sveitarfélög og opinberar stofnanir 
  • Fjármálafyrirtæki 
  • Heilbrigðisstofnanir 
  • Fyrirtæki með viðkvæm viðskiptagögn 
Maður við borð
Öruggur rekstur gervigreindar á Íslandi
Frétt

Öruggur rekstur gervigreindar á Íslandi

Notkun gervigreindar í íslensku atvinnulífi hefur aukist hratt. Fyrir mörg fyrirtæki og stofnanir fylgja tækninni áskoranir um hvernig megi tryggja að gögn yfirgefi ekki íslenska lögsögu, hver hafi aðgang að þeim og hvort þau uppfylli strangar öryggiskröfur.  Origo kynnir nýja þjónustu sem gerir fyrirtækjum og stofnunum kleift að keyra eigin gervigreindarlíkön í lokuðu og öruggu hýsingarumhverfi á Íslandi, þar sem gögnin eru áfram undir þeirra stjórn.

Efni og greinar

Nýttu kraft gervigreindar án þess að fórna öryggi, persónuvernd eða stjórn á gögnum

Origo heldur utan um samskiptaupplýsingar þínar svo hægt sé að afgreiða beiðni þína. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hjá Origo hér.