„Við opnuðum nýja verslun á hálfum degi.“
Viðskiptavinur
Þjónusta
Business Central
Markmið
Með innleiðingu Business Central hefur Húrra Reykjavík samþætt allar verslanir sínar í eitt kerfi, gert tengingu við vefverslun sjálfvirka og nýtt Power BI til að greina gögn á einfaldari hátt með betri yfirsýn.

Vantar titil
Húrra Reykjavík hefur verið ein af framsæknustu tískuverslunum landsins frá opnun sinni árið 2014. Á þessum tíu árum hefur fyrirtækið sýnt einstaka hæfni til að aðlagast breyttum þörfum viðskiptavina og markaðarins og vaxið úr einni verslun á Hverfisgötu yfir í þrjár verslanir ásamt öflugri netverslun sem hefur orðið lykilþáttur í rekstrinum.
Árið 2024 var eitt mesta vaxtarár fyrirtækisins til þessa, með opnun nýrra verslana á Keflavíkurflugvelli og í Kringlunni. Til að styðja við þennan hraða vöxt tók Húrra Reykjavík stórt skref í stafrænum umbreytingum með því að innleiða Microsoft Business Central frá Origo.

Framtíðin með Business Central frá Origo
Húrra Reykjavík stefnir á frekari innleiðingu sérlausna frá Origo til að nýta kerfið enn frekar. Björn er bjartsýnn á framtíðina. „Business Central hefur átt sinn þátt í þessum vaxtarfasa 2024 og mun halda áfram að gagnast okkur um ókomna tíð. Hlutirnir breytast hratt í kringum okkur og þó það sé orðið þreytandi að hlusta á fólk tala um gervigreind þá er það farið að hafa áhrif á hvernig unnið er í fjárhags- og birgðabókhaldi og það sér ekki fyrir endann á því. Ég er til í að veðja á Business Central þar."


