Mynd

Stafræn framsetning á áhrifum og umfangi loftslagsbreytinga á Íslandi

veðurstofa íslands

Viðskiptavinur

veðurstofa íslands

Þjónusta

Bakendaforritun

Framendaforritun

Hýsing

Markmið

Origo fékk það verkefni að stafvæða fjórðu samantektarskýrslu vísindanefndar um loftslagsbreytingar.

veðurstofa íslands
Hröð afhending

Origo fékk það verkefni að stafvæða fjórðu samantektarskýrslu vísindanefndar um loftslagsbreytingar til að auka aðgengi að upplýsingum úr skýrslunni. Úr því verkefni varð til vefurinn loftslagsbreytingar.is sem varpar fram vísindalegum athugunum vísindanefndar. Rán Flygenring teiknaði fallegu myndirnar á vefnum til að gefa skýrslunni líf og hönnunarstofan Metall sá um að hanna viðmótið. Vefurinn var tilbúinn á einungis 18 dögum.

veðurstofa íslands
Mikilvægt að tryggja aðgengi fyrir alla

Stafrænt aðgengi fyrir alla er gífurlega mikilvægt og þarf að hafa það í huga í öllum ákvörðunum sem teknar eru. Til þess að sem flest geti lesið efnið á loftslagsbreytingar.is var viðmótið aðgengisprófað af Reykjavík Marketing. Auk þess geta notendur hlustað á íslenskan talgervil lesa upp textann.

Flóknar upplýsingar gerðar aðgengilegar

Skýrslan um umfang og afleiðingar hnattrænna loftslagsbreytinga og áhrif þeirra á Ísland er unnin af vísindanefnd um loftslagsbreytingar. Markmiðið skýrslunnar er að kortleggja ástand þekkingar á loftslagsbreytingum og áhrifa þeirra hér á landi, hver séu helstu óvissuatriði tengd áhrifum loftslagsbreytinga og hvaða vafamál sé brýnt að skoða betur. Skýrslan er um 400 blaðsíður og málefnið brýnt og var þetta því gífurlega mikilvægt verkefni. Origo tókst með þessu verkefni að koma flóknum upplýsingum á stafrænt form og þar með gera þær aðgengilegar fyrir alla.

Fagmennska, sveigjanleiki og rösk vinnubrögð voru einkennandi fyrir þá vinnu sem Origo lagði til við gerð vefsins. Ég er þeim afar þakklát fyrir vinnuna sem þeir skiluðu og þeim sveigjanleika sem okkur var sýnt.

Anna Hulda Ólafsdóttir

Skrifstofustjóri loftslagsþjónustu og aðlögunnar